mótun klasastefnu.
Hæstv. forseti. Ég ætla fyrst og fremst að þakka jákvæða og góða umræðu og innlegg hv. ræðumanna sem komu sumir með mjög mikilvæga punkta inn í umræðuna, hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson, hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sem öll eru meðflutningsmenn. Ég kom inn á það og beindi til nefndarinnar að skoða aðkomu erlendra sérfræðinga, sem ég er ekki í vafa um að nefndin geri og svo starfshópurinn þegar þar að kemur, og læra af reynslu annarra þjóða sem eru komnar lengra í slíkri stefnumótun. Ég vil þá vísa í umsögn Nýsköpunarmiðstöðvar við málið síðast. Ég man eftir skýrslu frá Danmörku þar sem árangurinn er metinn þannig að minni og meðalstór fyrirtæki sem hafa tekið þátt í klasasamstarfi séu fjórum sinnum líklegri til að koma inn með nýjar hugmyndir í starfi sínu svo að möguleikinn á nýsköpun og nýskapandi verkefnum eykst til muna. Þetta tel ég afar mikilvægt að við höfum í huga frá upphafi, hvernig við mælum árangur af slíkri stefnu, slíku starfi og hvernig við nýtum fjármunina.
Nýsköpunarmiðstöð vísar í umsögn sinni í skýrslu Norðmanna um klasa og árangur af klasasamstarfi frá 2015 og segir, með leyfi forseta, að klasasamstarf sé „líklegt að bera árangur þegar samstarfsaðilar hafa sameinast um skýra sýn og stefnu um ávinning. Um er að ræða samstarf þar sem einkaaðilar eru leiðandi.“ — Þá erum við að tala um sjálfsprottna klasa. Þetta er í gegnum alla virðiskeðjuna, ekki síst að byggja þessa brú á milli mennta- og rannsóknastarfs og atvinnulífs. — „Samstarf felst í þátttöku þekkingarstofnana og aðila í nýsköpun og atvinnuþróun. Samstarfið er forsenda aukinnar verðmætasköpunar og bættrar samkeppnishæfni.“ — Það er alltaf undirliggjandi þáttur og síðan segir eins og á við um flest sem við tökumst á hendur í þessu: „Samstarfið hefur verið faglega vottað og er nýsköpunardrifið.“
Ég beindi því til nefndar að skoða hvort tillagan ætti ekki heima hjá hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Svo er ráð að starfshópurinn myndi sækja sér þekkingu erlendis að. Þá er það jafnframt að segja, sem kemur fram í umsögnum Íslenska ferðaklasans og Íslenska sjávarklasans, að mikilvægt er að haft verði samráð við þá sem eru þegar til staðar. Íslenski ferðaklasinn leggur til að mynda áherslu á að þeir íslensku klasar sem nú þegar eru starfandi fái að koma að mótun slíkrar opinberrar klasastefnu í samráði. Það tel ég líka afar mikilvægt og láðist að koma inn á í ræðu minni. Íslenski sjávarklasinn tekur í svipaðan streng.
Ég þakka góða umræðu og vænti þess að málið fái réttláta og góða málsmeðferð eins og ávallt í hv. atvinnuveganefnd.