undirritun og fullgilding þriðju valfrjálsu bókunarinnar við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Örstutt atriði til að bregðast við ræðum hv. þingmanna sem komu hingað upp. Við erum með annað mál sem var flutt hér í gær um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, sem er mjög svipað og alveg jafn sjálfsagt og þetta og tengist náttúrlega mjög mikið inn á það sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson sagði um fátækt barna. Þau tvö mál bara garga á nákvæmlega þennan hóp, kalla á þá hjálp sem þessar bókanir geta veitt.
Síðan örstutt um það að búið er að bæta mjög í menntun hvað varðar barnasáttmálann, sem er mjög til bóta. Ég lærði ekkert um slíkt í skóla eða um mannréttindi yfirleitt, barnasáttmálinn var ekki til þá. En barnasáttmálinn er sérstaklega mikilvægur einmitt af því að hann kveður á um aukin réttindi barna miðað við mannréttindasáttmálann af því að börn eiga rétt á aukinni vernd út af stöðu þeirra. Það eru þeirra auknu réttindi sem koma fram í barnasáttmálanum. Það er verið að segja að þau hafi öll réttindi samkvæmt mannréttindasáttmálanum, að sjálfsögðu, þau eru líka fólk eins og allir aðrir, en þau hafa aukna vernd út af stöðu þeirra, viðkvæmri stöðu þeirra, og það er það sem barnasáttmálinn veitir. Ég skora á hvern sem er að gagnrýna þann sáttmála því að mér dettur ekki í hug hvernig það mál ætti að fara lengra.
Við erum með fulltrúa í barnaréttarnefndinni en leyfum Íslendingum ekki að fara með mál sín þangað. Það eitt og sér ætti að nægja til að láta þetta mál renna í gegn ásamt málinu um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi.