150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

verslun með áfengi og tóbak.

53. mál
[16:12]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég geri ráð fyrir að það sé einsdæmi að verið sé að ræða þennan lagabálk, þ.e. breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, fyrir jafn fámennum þingsal og nú, því að yfirleitt þegar lögð hafa verið fram frumvörp um þennan lagabálk hefur málgleði þingmanna verið mikil. Það er væntanlega vegna þess að hér er um sárasaklaust frumvarp að ræða, ef svo má að orði komast, er lýtur ekki að því að gefa áfengisverslun frjálsa, þó að það kunni að vera sjónarmið þeirrar sem hér stendur — en alls ekki sjónarmið allra flutningsmanna frumvarpsins.

Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011, og við erum fyrst og fremst að tala um staðsetningu áfengisverslana. Með mér flytja málið hv. þingmenn Ólafur Þór Gunnarsson og Willum Þór Þórsson. Frumvarpið er einfalt og 1. gr. hljóðar svo:

„Við 2. málsl. 10. gr. laganna bætist: og hafa samráð við sveitarstjórn um staðsetningu verslunar.“

Frumvarp þetta var áður lagt fram á síðasta þingi en ekki náðist að mæla fyrir því.

Með frumvarpinu er lagt til að sveitarfélögin hafi aðkomu að staðarvali þegar opnaðar eru nýjar áfengisverslanir. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, ÁTVR, hefur hingað til haft fullt frelsi til að staðsetja verslanir sínar án þess að hafa þurft að hafa um það samráð við handhafa skipulagsvaldsins, sjálf sveitarfélögin. Þekkt er sú staðreynd að sveitarfélögin hafa ekki alltaf verið sátt við staðsetningu verslana ÁTVR og jafnvel talið staðarvalið vinna gegn markmiðum þeirra í skipulags- og umhverfismálum. Sem dæmi má nefna að sveitarfélagið Garðabær hefur ítrekað kvartað yfir því að ÁTVR hafi einhliða lokað verslun sinni í miðbæ Garðabæjar og svo nokkrum árum síðar opnað nýja verslun í Kauptúni en ekki í miðbæ Garðabæjar þrátt fyrir skýrar óskir sveitarfélagsins þar um.

Í umsögn umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar frá því í mars 2017 þegar fjallað var um lagafrumvarp um smásölu áfengis, sem var 106. mál á 146. löggjafarþingi, kom fram að stefna borgaryfirvalda væri að efla verslun og þjónustu „innan íbúðarhverfa þannig að flestir geti nýtt sér þjónustu innan síns hverfis og dregið verði úr vegalengdum“. Samdóma álit ráðsins var að breytt fyrirkomulag á verslun með áfengi gæti ýtt undir fjölgun verslana og markvissari staðsetningu þeirra í kjörnum hverfanna. Umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar hvatti til þess að lagagrundvöllur þess að sveitarfélögin hefðu aðkomu að staðarvali og afgreiðslutíma vínbúða yrði treystur, hvort sem það væri gert með afnámi einkaleyfis eða breyttri stefnu ÁTVR. Í ljósi þess að frumvarp um afnám einkaleyfis hefur ítrekað verið lagt fram og ekki fengið framgang á þinginu er hér lagt til að sveitarfélögin verði lögbundinn samráðsaðili við val á staðsetningu áfengisverslana til að tryggja að sem flest sjónarmið komi fram þegar staðsetning er valin.

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan hefur það verið skoðun mín að þrátt fyrir að áfengi sé ekki hefðbundin neysluvara sé ekki lengur forsenda til þess að það þurfi að vera opinber aðili sem reki vínbúðir, enda er hér fjöldi einkaaðila, t.d. allt í kringum þetta hús, sem reka veitingastaði, kaffihús og annað og selja vín. Ég hef sagt að ég skil ekki alveg af hverju einkaaðilar mega selja vín í glösum en það þarf ríki til að selja vín í flöskum eða dósum. En þetta frumvarp snýst ekki um það, virðulegur forseti. Ég varð samt engu að síður að koma þeim sjónarmiðum á framfæri.

Ég held að mikilvægt sé að sveitarfélögin fái að hafa áhrif á staðsetningar verslana og það sé lögbundið samráð við sveitarfélög. Og það er víða. Reyndar kemur fram í frumvarpsgreininni að samþykki sveitarstjórnar þurfi fyrir því að opna verslun og sveitarfélagið myndi annaðhvort segja nei eða já.

Það er líka stundum ágætt að hafa í huga í umræðunni að vel kynni að vera að sveitarfélög og kjörnir fulltrúar þess óskuðu eftir því að útsölustaðir áfengis væru ekki í sveitarfélagi þeirra. Þá ætti þeim í rauninni að vera heimilt að segja nei við því. En þetta snýst kannski fyrst og fremst um skipulagsmál og að skipulagsvald sveitarfélaga sé virt. Það getur skipt miklu máli fyrir kjarnastarfsemi og miðbæjarkjarna víða að þar sé sala áfengis, eins og t.d. lyfsölur, matvöruverslanir, veitingastaðir eða annað. Það er hreinlega þekkt að ÁTVR hefur ítrekað leitað í að vera nálægt t.d. matvöruverslunum. Þróun á matvælamarkaðnum hefur verið í þá átt að fyrirtæki hafa frekar sótt í útjaðra með stærri verslanir og stór bílaplön þannig að fólk neyðist til að fara þangað á einkabílnum og gera magninnkaup, en í skipulagslega þættinum vilja sveitarfélögin oft gjarnan einmitt byggja upp miðbæjarkjarna þar sem auðveldara aðgengi er fyrir fólk með virkum ferðamátum, hvort sem er með strætó, gangandi eða hjólandi, og að þetta sé svona meira í nágrenni við íbúabyggð. Þetta frumvarp gengur út á það.

Ég held að ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um það, enda er um frekar einfalt mál að ræða. Ég óska eftir því við virðulegan forseta að þegar umræðu um málið lýkur verði því vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar sem mér skilst að hafi almennt farið með þennan lagabálk.