150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

samstarf Íslands og Bandaríkjanna.

[13:34]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Að mínu mati berast ljótar fréttir frá Bandaríkjunum. Eins og við vitum hefur forseti Bandaríkjanna ákveðið að hleypa Tyrkjum inn á svæði Kúrda og að mínu mati með ákveðnu ofbeldi. Þetta eru vondar og skelfilegar fréttir sem ég tel að vestræn lýðræðisríki þurfi að bregðast við. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort ríkisstjórnin sé búin að ræða þessa ákvörðun, hver hennar skoðun á þessari ákvörðun Bandaríkjastjórnar sé og hvort Ísland muni í kjölfarið ræða það að gefa út stuðningsyfirlýsingu við Kúrda. Það er líka ljóst, og mér finnst það jákvætt, að bakland stjórnarflokkanna, a.m.k. tveggja þeirra, titrar að vissu leyti vegna þessara frétta. Meðal annars sagði einn af helstu áhrifamönnum innan Sjálfstæðisflokksins í gær, með leyfi forseta:

„Ef ákvörðun Trumps í Kúrdistan er vísbending um hvernig þessi Bandaríkjastjórn kemur fram við bandamenn er best að sleppa samstarfi við þá ríkisstjórn með öllu. Samstarfi á norðurslóðum ætti þannig að vera sjálfhætt.“

Þetta eru stór orð frá einum helsta áhrifamanni innan Sjálfstæðisflokksins.

Mig langaði í þessu samhengi að spyrja forsætisráðherra hvort hún telji mikilvægt að þjóðaröryggisráð komi saman eða þegar það hittist næst ræði og fari yfir þessa þætti og hvort hún muni taka þetta mál upp og fara þar með yfir öll samskipti við Bandaríkin. Eins og utanríkisstefnu Bandaríkjanna er háttað í dag er hún ógn við lýðræðið, hún er ógn við farsælt vestrænt samstarf sem hefur verið á umliðnum árum og áratugum. Ég tel það líka ákveðna ógn, verulega ógn, við Ísland og okkur sem erum á norðurslóðum hvernig umhverfisstefnu Bandaríkjanna er háttað.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Mun hún beita sér fyrir því að þetta verði tekið upp í þjóðaröryggisráði? Ég vildi líka fá hennar afstöðu varðandi það að lýsa yfir stuðningi við Kúrda.