150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

samstarf Íslands og Bandaríkjanna.

[13:36]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Fyrst vil ég segja að þessi stefnubreyting Bandaríkjamanna og boðaðar hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum á sýrlensku yfirráðasvæði eru mjög slæm tíðindi. Bæði tel ég nokkuð einsýnt að slíkar aðgerðir muni hafa gríðarleg áhrif á almenna borgara en ekki er heldur útilokað að slíkar aðgerðir geti leyst hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki aftur úr læðingi, en eins og kunnugt er voru það sýrlenskir Kúrdar sem stóðu í fylkingarbrjósti í hernaði við þessi illræmdu samtök.

Ég minni á að íslensk stjórnvöld hafa á fyrri stigum gagnrýnt hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi og það var m.a. gert beint við sendiherra Tyrklands gagnvart Íslandi örfáum dögum eftir að síðustu aðgerðir hófust þar í janúar í fyrra. Sömuleiðis lýstu íslensk stjórnvöld sérstökum áhyggjum af stöðu mála á vettvangi Atlantshafsbandalagsins í kjölfar harðnandi átaka í Afrin-héraði.

Það vekur athygli að sú stefnubreyting Bandaríkjanna að draga sitt lið frá landamærahéruðum Sýrlands hefur ekki verið til umræðu á vettvangi Atlantshafsbandalagsins þar sem þó ætti væntanlega að ræða hana. Sömuleiðis vil ég segja að þessi ákvörðun og sá hernaður sem Tyrkir hafa boðað í norðanverðu Sýrlandi er einhliða aðgerð af þeirra hálfu og virðist hafa komið mörgum bandalagsþjóðum á óvart.

Hv. þingmaður spyr hvort þetta hafi verið rætt í ríkisstjórn. Nei, en ég hef hins vegar fengið upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu. Málum er þannig háttað að hæstv. utanríkisráðherra er á ferð í Afríku og ég hef ekki náð í hann í síma vegna þessa máls en það verður tekið upp á vettvangi ríkisstjórnar síðar í vikunni. Og af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um þjóðaröryggisráð er því til að svara að ég veit að óskað hefur eftir fundi í utanríkismálanefnd vegna þessa og ég tel rétt að sá fundur fari sem fyrst fram þegar hæstv. utanríkisráðherra kemur heim sem verður á fimmtudaginn ef ég hef réttar upplýsingar um þetta mál.