ákvarðanir Sjúkratrygginga um kaup á hjálpartækjum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Sjúkratryggingar Íslands fara með þennan þátt þjónustunnar, þ.e. ákvarðanir um kaup á einstökum hjálpartækjum koma ekki á borð heilbrigðisráðherra enda væri það óvinnandi vegur. Hins vegar hef ég fengið nokkrar ábendingar frá þeim aðilum sem hv. þingmaður vísar til, einstaklingum sem hafa gert athugasemdir við þau innkaup sem þarna hafa farið fram. Ég hef beint þeim ábendingum og athugasemdum til Sjúkratrygginga Íslands og hef óskað eftir því að hlustað verði eftir þeim ábendingum sem þarna hafa komið fram og vænti þess að svo verði gert.