150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

kjaraviðræður og stytting vinnuvikunnar.

[13:54]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Forseti. Það urðu nokkur þáttaskil um daginn í viðræðum ríkisins við launastéttir ríkisstarfsmanna þegar stórir hópar launþegasamtaka opinberra starfsmanna ákváðu að vísa kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara. Nú hefur mér skilist að síðan í vor hafi lítil sem engin hreyfing verið á þessum viðræðum. Mér hefur einnig verið tjáð að nú þegar taka átti viðræður upp aftur að loknu sumarhléi hafi ríkið, þ.e. fulltrúar ríkisins, mætt til leiks með nákvæmlega sama tilboð og hafði þegar verið illa tekið í vor. Það vill þannig til að ein meginkrafa þessara launþegasamtaka er stytting vinnuvikunnar. Mig langar, með leyfi forseta, að lesa upp örlítinn texta, sem er svona:

„Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn þann 12.–13. október 2018, hvetur til þess að vinnuvikan verði stytt niður í 30 tíma. Flokksráðsfundur hvetur verkalýðshreyfinguna og þingmenn Vinstri grænna til þess að styðja allar aðgerðir sem stefna að því takmarki.“

Nú langar mig til að spyrja formann Vinstri grænna, Katrínu Jakobsdóttur, hvort hún sé sammála þeirri stífni sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur beitir launþegasamtök opinberra starfsmanna í þessu máli. Hyggst formaður Vinstri grænna taka upp samtal við hæstv. forsætisráðherra um að þessu máli verði hreyft þannig að samningar geti náðst? Eins og menn vita eru blikur á lofti varðandi aðra kjarasamninga og ástandið í þessum viðræðum er ekki til þess að auka fólki bjartsýni um að kjarasamningar á almennum markaði haldi. Mig langar til að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í hvað hún hyggist gera varðandi þetta mál.