150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

kjaraviðræður og stytting vinnuvikunnar.

[13:56]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hef fylgst með gangi mála í kjaraviðræðum ríkisins við opinbera starfsmenn og ég vil byrja á að segja að ég held að það séu full efni til þess að þar verði hægt að ná saman. Ég ætla hins vegar ekki að færa kjaraviðræðurnar inn í þingsal. Ég er viss um að hv. þingmaður er mér sammála um að hann sé ekki rétti vettvangurinn til að eiga slíkar viðræður.

Hv. þingmaður nefndi sérstaklega það sem tengist vinnutíma. Ég vil í fyrsta lagi segja að lífskjarasamningurinn sem var undirritaður í vor sem gerður var á almennum vinnumarkaði fól í sér ákveðnar breytingar til styttingar vinnutíma sem ég vonast til þess að geri þetta samfélag sem við byggjum bæði fjölskylduvænna og mannvænna. Ég veit að stéttarfélög opinberra starfsmanna, þá sérstaklega BSRB, hafa lagt mikla áherslu á að síðan verði byggt á þekkingunni og reynslunni sem hefur skapast af þeim tilraunaverkefnum sem hafa verið í gangi og urðu til og spruttu upp úr kjarasamningum ríkisins og BSRB. Ég tel að sjálfsögðu eðlilegt að áfram verði byggt á þeim þekkingargrunni sem þar myndaðist.

Ég held líka að við séum öll mjög meðvituð um það að kjarasamningar á opinberum markaði, hvort sem er við BSRB eða háskólamenn sem hafa ekki verið með nákvæmlega sömu kröfugerð og BSRB, verði í ákveðnu samræmi við þá kjarasamninga sem gerðir voru á almennum markaði fyrr á þessu ári. Ég hef lagt áherslu á að það er mikilvægt að færa vinnumarkaðsmál á Íslandi nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum og ég er ekki frá því að allmargir þingmenn í þessum sal, þvert á flokka, séu mér sammála um það. Hluti af þeirri menningu er að þar er ákveðið samræmi bæði milli almenna markaðarins og opinbera markaðarins. (Forseti hringir.) Við erum vissulega ekki komin jafn langt og Norðurlöndin í því en ég vonast til þess að við getum stefnt þangað og ég tel að lífskjarasamningarnir hafi verið fyrsta skrefið í því.