150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

kjaraviðræður og stytting vinnuvikunnar.

[13:59]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir þessi svör og mig langar til að lesa aftur úr niðurstöðu flokksráðsfundar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, geri það ekki á hverjum degi, með leyfi forseta. Hér segir:

„Lífsgæðaaukning í kjölfar styttingar vinnuviku gæti einnig leitt til þess að færri brenni út í starfi, verði óvinnufærir og þurfi á velferðarþjónustu að halda.“

Og síðan aftur, með leyfi forseta:

„Styttri vinnuvika stuðlar að lífsgæðum, ánægju og eflingu fjölskyldutengsla fram yfir peninga og þann ímyndaða hag sem sumir atvinnurekendur telja sig hafa af því að halda vinnuviku sem lengstri.“

Því vil ég ítreka aftur við hæstv. forsætisráðherra hvort hún hyggist ekki beita áhrifum sínum til þess að þær ágætu tillögur, sem ég las upp, muni verða leiðarljós í þessum viðræðum áfram og að ríkið verði ekki einn af þeim atvinnurekendum sem telja sig hafa hag af því að halda vinnuviku sem lengstri.