kjaraviðræður og stytting vinnuvikunnar.
Herra forseti. Fyrst og fremst kem ég hingað upp til að segja að ég held að mér og okkur öllum á þingi sé alveg ljóst mikilvægi þeirra stétta sem um ræðir fyrir velferðarkerfið okkar og öll önnur kerfi. Það liggur fyrir að þessar stéttir gegna gríðarlega mikilvægum störfum og þess vegna er mikilvægt að kjarasamningar náist við starfsmenn á opinberum markaði. Ég man hins vegar eftir því að hv. þingmenn Miðflokksins voru ekki sérstaklega bjartsýnir á að aðkoma stjórnvalda myndi duga vel í lífskjarasamningunum. Þeir reyndust ekki sérstaklega sannspáir þar og ég legg til að hv. alþingismenn gefi viðsemjendum tækifæri til að halda áfram að vinna að þessum málum á vettvangi ríkissáttasemjara þar sem þau eiga heima og að við vinnum að því, eins og ég sagði áðan, að færa íslenska vinnumarkaðinn lengra í átt til þess sem gerist annars staðar á Norðurlöndum þar sem við sjáum miklu meiri stöðugleika í kringum kjarasamninga. Ég held að við eigum að stefna þangað og þar getur Alþingi líka lagt sitt af mörkum í stóru línunum.