kjaraviðræður BSRB og ríkisins.
Herra forseti. Eins og kom fram áðan hefur nú slitnað upp úr kjaraviðræðum ríkis og BSBR. Sýnir það vel afstöðu stjórnvalda til þessara lykilstétta hins opinbera. Formaður BSRB sagði meira að segja að þetta sýndi að ríkið hefði ekki verið í kjarasamningsviðræðum af heilum hug. Það eru mjög stór orð. Í BSRB eru á þriðja tug þúsunda opinberra starfsmanna og tveir þriðju af þeim eru konur. Þetta eru því kaldar kveðjur til stórra kvennastétta frá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur. Hugur þessarar ríkisstjórnar til ríkisstarfsmannanna kemur einnig vel fram í nýkynntu fjárlagafrumvarpi en þar stendur svart á hvítu að einungis sé gert ráð fyrir að opinberir starfsmenn fái 3% launahækkun og sú umræða á svo sannarlega erindi í þingsal. Á sama tíma berast fréttir um ótrúlega launahækkanir ríkisforstjóra sem í sumum tilvikum nema 40–80% á tveimur árum. Þetta gerist á vakt forsætisráðherra.
Herra forseti. Hvernig stendur á því að ráðherra stendur að hækkun launa ríkisforstjóra um 40–80% á sama tíma og sjúkraliðar, slökkviliðsmenn, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, lögreglumenn og kennarar eiga að fá 3% launahækkun? Af hverju stendur forsætisráðherra að frumvarpi sem gerir beinlínis ráð fyrir kjararýrnun hjá opinberum starfsmönnum? Samkvæmt fjárlagafrumvarpi þessa sama ráðherra er gert ráð fyrir meira en 3% verðbólgu.
Ég tek fram, herra forseti, að það er ekki boðlegt svar ef ráðherra kemur hingað á eftir og segir að henni finnist þetta kannski vera óeðlilegt en hún geti einfaldlega ekki gert neitt í því. Stjórnir ríkisfyrirtækja eru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar allrar og því til viðbótar voru stjórnendur og ráðuneytin, þ.e. ráðherrarnir, beinlínis beðin um athugasemdir við síðustu launahækkun ríkisforstjóranna en við það hækkuðu þeir enn meira. Fjárlagafrumvarpið er svo sannarlega á ábyrgð forsætisráðherra.