kjaraviðræður BSRB og ríkisins.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér upp með allmargar spurningar og líka þau svör sem hann vill ekki fá, þannig að það tekur kannski tíma að fara yfir þetta. Í fyrsta lagi segir hv. þingmaður að ég hafi staðið fyrir hækkunum á launum ríkisforstjóra. Ég vil bara minna hv. þingmann á að það var fyrir tilmæli hæstv. fjármálaráðherra, sem vill svo til að er í ríkisstjórn með mér, að laun bankastjóra Landsbankans og Íslandsbanka voru lækkuð frá því sem áður hafði verið ákveðið, eftir að bankaráð í þeim bönkum höfðu ákveðið að hunsa tilmæli þarsíðasta hæstv. fjármálaráðherra um þau sömu mál, bara svo að ég haldi öllu til haga. Við skulum því ekki gefa okkur það, eins og hv. þingmaður gerir hér, að vilji stjórnmálamanna, ekki bara í mínum flokki heldur líka í öðrum flokkum, hafi ekki komið nokkuð skýrt fram í gegnum þessi tilmæli og skilað sér í lækkunum, a.m.k. hjá einhverjum ríkisforstjórum.
Síðan vil ég aðeins tala um fjárlagafrumvarpið sem hv. þingmaður hefur fjallað töluvert um í ræðu og riti, enn eitt fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjórnar þar sem uppbyggingu innviða er haldið áfram, hvort sem við erum að tala um heilbrigðiskerfið, félagslega kerfið eða menntakerfið. Það er vissulega rétt að aukningin er hófstilltari en var í fyrsta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar þar sem þurfti hreinlega að snúa ákveðnum hlutum við. En áfram höfum við haldið á þessari braut þannig að allt tal um það af hálfu hv. þingmanns að við séum að grafa undan hinu opinbera kerfi stenst enga skoðun, bara svo að það sé sagt hér.
En þegar við komum að raunverulegu umfjöllunarefni fyrirspurnarinnar, sem eru kjarasamningar, vil ég ítreka að viðræðum hefur ekki verið slitið, en eitt af því sem fram kom hjá hv. þingmanni var að viðræðum hefði verið slitið. Það að vísa viðræðum til ríkissáttasemjara felur ekki í sér að kjaraviðræðum sé slitið. Það er alls ekki sami hluturinn. Í raun og veru er það svo að þó að viðræðurnar séu komnar á þetta stig, að þær séu komnar (Forseti hringir.) til ríkissáttasemjara, ætla ég að leyfa mér að halda því fram að undir hennar góðu forystu muni þessir aðilar finna góðar lausnir (Forseti hringir.) að sanngjörnum kjarasamningum eins og við höfum áður séð gerast á þessu ári.