kjaraviðræður BSRB og ríkisins.
Herra forseti. Mér finnst hæstv. ráðherra boða enn og aftur aðgerðaleysi í ofurlaunaþróun ríkisforstjóra. Síðan þessi ríkisstjórn tók við völdum hafa laun bankastjóra Landsbankans hækkað um 82%, hjá öðrum ríkisforstjórum er ég að tala um 63% launahækkun, 67% launahækkun, 43% launahækkun, 56% launahækkun. Þetta eru launahækkanir hjá ríkisforstjórum. Það gengur ekki að koma í ræðustól og tala eins og sú launaþróun sé á einhvers konar sjálfstýringu sem komi ráðherranum ekkert við.
Mér finnst það kristallast í þessari umræðu hvaða hagsmunir verða hér ofan á. Við höfum ríkisstjórn sem telur fullkomlega eðlilegt að fjármagnstekjuskatturinn sé lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Við höfum ríkisstjórn sem finnst fullkomlega eðlilegt að upphæð veiðileyfagjalda, síðan þessi ríkisstjórn tók við völdum, hafi lækkað um 40%. Hér höfum við ríkisstjórn sem finnst fullkomlega eðlilegt að 5% ríkustu landsmanna eigi svipað magn af hreinum eignum og hin 95%. Ég er að kalla eftir aðgerðum til að rétta af þann ójöfnuð og (Forseti hringir.) á sama tíma kemur þessi ráðherra með fjárlagafrumvarp þar sem einungis er gert ráð fyrir 3% launahækkun (Forseti hringir.) hjá opinberum starfsmönnum. Hvernig getur þetta verið í samræmi við skoðun hæstv. ráðherra, herra forseti?