150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

kjaraviðræður BSRB og ríkisins.

[14:07]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður verður að hlusta á það sem við hann er sagt. Ég fór yfir það áðan að hæstv. fjármálaráðherra sendi tilmæli til stjórna bankanna, bankaráðanna, og þá fyrst var gripið inn í þá launaþróun sem bankaráðin höfðu staðið fyrir. Hvernig getur hv. þingmaður sakað þá sem hér stendur og núverandi ríkisstjórn um aðgerðaleysi þegar það er einmitt þessi ríkisstjórn sem er að grípa til aðgerða þegar kemur að launaþróun ríkisforstjóra, þegar það er þessi ríkisstjórn sem tók það skref sem enginn hafði þorað að taka áður, að leggja niður kjararáð og tengja laun æðstu embættismanna ríkisins við launaþróun á hinum opinbera markaði til að koma í veg fyrir launaskrið, þegar það er þessi ríkisstjórn sem innleiðir þriggja þrepa skattkerfi þar sem þrepin fylgja sömu breytum sem ekki einu sinni var gert 2009–2013 þegar ég sat í ríkisstjórn með flokki hv. þingmanns þegar launaþrepin fylgdu ólíkum breytum þannig að hátekjuhópurinn hagnaðist mest á launahækkunum en ekki lágtekjuhópar? Hvernig getur hv. þingmaður talað með þeim hætti sem hann gerir þegar það bara stenst enga skoðun sem hann heldur fram? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)