150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

velsældarhagkerfið.

[14:21]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hefja þessa mikilvægu umræðu á vettvangi Alþingis. Það hefur staðið yfir vinna sem kynnt var á ráðstefnu sem hv. þingmaður vísaði til, vinna nefndar um mælikvarða um hagsæld og lífsgæði, og skilaði nefndin tillögu að 39 mælikvörðum í byrjun síðasta mánaðar og birti þessa skýrslu í tengslum við það. Í kjölfarið var haldin ráðstefna á vegum forsætis- og fjármálaráðuneytis í samstarfi við OECD og skosk stjórnvöld þar sem vinnan var kynnt.

Ég hef sagt að mér finnst þessi vinna skipta máli út af a.m.k. tvennu og ég get tekið undir það þriðja sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni. Það sem ég hef sagt er að stóru áskoranirnar sem samfélög standa frammi fyrir, loftslagsváin, öldrun þjóða og tæknibreytingar, kalla allar á að við endurskoðum hvernig við hugsum hið opinbera og rekstur þess, hvernig við ætlum að mæta þessum áskorunum, ekki síst auðvitað umhverfislegu áskorununum, en líka bara gerbreyttu samfélagi þegar kemur að tæknibreytingum, svo dæmi sé tekið, og öldrun þjóðarinnar sem kallar á nýja hugsun og nýjar lausnir í velferðarmálum.

Síðan er það atriði númer tvö. Það er auðvitað hið eðlilega markmið að við vinnum að því að auka hamingju fólks, sem er oft vandræðalegt fyrir stjórnmálamenn að tala um og við ræddum það einmitt á þeirri ráðstefnu. Þetta er einhvern veginn svo fjarskylt krónum og aurum og efnahagsstærðum, en auðvitað er þetta nátengt krónum og aurum og efnahagsstærðum því að hamingjan byggir líka á öryggi, byggir á velsældinni og byggir á hagsældinni.

Það þriðja er það sem hv. þingmaður nefndi í sínum heimspekilegu inngangsorðum, traustið á stofnunum samfélagsins. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi endurskoðun á því hvernig við skipuleggjum og forgangsröðum í opinberum rekstri getur orðið til þess að auka traust. Ég held að þetta tengi einfaldlega betur við það sem fólk hefur raunverulega þörf fyrir í lífinu og það getur byggt upp traust. Ég tek því undir það sjónarmið sem hv. þingmaður kastaði hér fram.

Til að svara spurningum hv. þingmanns — hún spyr hvar Ísland standi þegar kemur að mælingunum á þessum 39 mælikvörðum og hver næstu skref séu. Þessir mælikvarðar veita yfirsýn yfir lykilþætti velsældar. Þeir munu vera upplýsandi fyrir stefnumótun stjórnvalda og skiptast í þrjá þætti, félagslega, efnahagslega og umhverfislega með 13 undirflokkum. Eftir því sem við á eru þeir sambærilegir við mælikvarða sem eru gefnir út af öðrum löndum og af alþjóðastofnunum á borð við Eurostat og OECD. Þeir byggjast að stærstu leyti á opinberum hagtölum sem eru unnar eftir viðurkenndum aðferðum og það svarar spurningunni hvort þetta séu samanburðarhæfir mælikvarðar við önnur lönd. Stærstan hluta má sem sagt finna hjá OECD og Eurostat sem auðveldar allan samanburð á því hvernig Ísland stendur. Þó er bent á að horfa þurfi sérstaklega til þess að þróa betur vinnu við tiltekna umhverfisþætti og tiltekna félagslega þætti í þessum mælikvörðum.

Síðan spyr hv. þingmaður um næstu skref en þau snúa í raun og veru að því að greina stöðuna. Þarf einhvers staðar meiri vinnu? Á það er bent af nefndinni að við þurfum að gera betur í einhverjum mælikvörðum. En næstu skref tel ég að eigi að tengjast skipulagi opinberra fjármála. Við kynntum þá hugmynd okkar að næsta fjármálaáætlun muni byggja á þeim nýju mælikvörðum. Við erum núna í samstarfi við forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti að skoða hvernig fyrri fjármálaáætlanir hafi unnið að þeim velsældarmælingum sem þessir 39 mælikvarðar fjalla um. Við munum skoða sömuleiðis áherslur almennings, eins og þær birtast í þeirri skoðanakönnun sem nefndin lét gera. Þar var fólk spurt sérstaklega að því hvað það teldi mikilvægast fyrir samfélagið annars vegar og mikilvægast fyrir eigin lífsgæði hins vegar. Áhugavert var að sjá að heilbrigðismál og heilsa kom þar efst út, en síðan voru ólíkar niðurstöður eftir því sem neðar dró á listanum. Við þurfum að tryggja að við vinnum áfram, að við séum ekki einhvern veginn að finna upp hjólið, því að þá verður verkefnið allt of þungt, heldur vinnum áfram að þeim aðgerðum og áherslum þar sem við stöndum vel. En við þurfum sérstaklega að skoða hvar við stöndum höllum fæti, hvort sem það er í alþjóðlegum samanburði eða ekki, og margt af því sem þessir 39 mælikvarðar eiga að mæla ná langt út fyrir það sem stjórnvöld geta gert. Við þurfum því að fá fleiri aðila að borðinu og verkalýðshreyfingin hefur þegar sýnt þessu framtaki mikinn áhuga og fundað með sérfræðingum okkar um hvernig við getum tekið þetta mál áfram.

Síðast en ekki síst munum við líka fylgjast náið með því sem aðrar þjóðir eru að gera og ég minni þar á samstarf okkar með Nýja-Sjálandi og Skotlandi um velsældarhagkerfi. Eitt lítið skref var stigið í New York á dögunum á loftslagsaðgerðafundi þar sem fulltrúar Nýja-Sjálands, Íslands, Noregs, Fídjieyja og Kostaríka ákváðu að hefja undirbúning að fríverslunarsamningi sem mun taka mið af loftslagsmarkmiðum. Það er dæmi um það hvernig við getum í raun og veru átt frjáls viðskipti með öðrum hætti (Forseti hringir.) en við höfum gert hingað til.

Ég kemst því miður ekki lengra þótt ég gæti talað lengur um þessi mál. En þarna held ég að við séum komin með mjög góðan grunn til að halda áfram (Forseti hringir.) og við erum þegar farin að vinna að innleiðingu þessa máls.