150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

velsældarhagkerfið.

[14:36]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Mig langar til að ræða notkun gagna í tengslum við mælikvarða á hagsæld og lífsgæðum. Í nýlegri bók, Invisible Women: Exposing Data Bias in a World Designed for Men, sem breska blaðakona Caroline Criado Perez skrifaði er fjallað um holótt gögn, gögn sem gera það að verkum að heimur sem karlar og konur búa í til jafns hefur verið hannaður með karla sem mælistiku fyrir allan almenning. Svona gögn geta haft mjög alvarlegar afleiðingar, sér í lagi þegar kemur að heilbrigðiskerfinu þar sem dæmin sýna að konur deyja vegna skorts á upplýsingum um áhrif sjúkdóma og lyfja á þær. Þessi bók byggir á gríðarlegri rannsóknarvinnu og er heimildaskráin rúmlega fjórðungur lengdar bókarinnar. Dæmin eru fjölmörg og þar má nefna t.d. að hitastig á hefðbundinni skrifstofu er að jafnaði 5°C lægra en það sem konum þykir yfirleitt þægilegt. Meðalsnjallsími er töluvert of stór fyrir hendur kvenna. Vinnufatnaður er í flestum tilfellum hannaður fyrir karlmannslíkamann sem þýðir að hann er bæði óþægilegur fyrir konur og getur jafnvel verið hættulegur. Þið munið kannski einhver eftir því að í fréttum sl. vor var greint frá því að hætta þurfti við tímamótaviðburð sem átti að vera fyrsta geimganga sögunnar þar sem bara konur komu við sögu. Það var nefnilega bara til einn búningur fyrir konur en þær ætluðu að vera tvær.

Bókinni um ósýnilegu konurnar er skipt í kafla um daglegt líf, vinnustaði, hönnun samgangna og umhverfis, heilbrigðiskerfi og opinbera stjórnsýslu. Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands, hefur mælt sérstaklega með bókinni fyrir fólk sem vinnur við að marka stefnu og taka ákvarðanir fyrir allan almenning þannig að mig langar að nota tækifærið og hvetja hæstv. forsætisráðherra til að hlusta og ekki styðjast við holótt gögn þegar við byggjum undir lífsgæði íslenskrar þjóðar.