150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

velsældarhagkerfið.

[14:55]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir þessa þörfu umræðu um velsældarhagkerfið á Íslandi. Það má líka segja: Takk fyrir 39 mælikvarða sem eiga að mæla þá velsæld. Við í Flokki fólksins höfum gjarnan talað um vesæld vegna þess að sá markhópur sem við erum sérstaklega stofnuð utan um eru þeir sem standa höllustum fæti í samfélaginu og eiga um sárt að binda. Ég vildi líka sjá, þótt ekki væru nema fimm mælikvarðar á því hér og nú, hvernig við gætum t.d. útrýmt fátækt. Við höfum séð að það er farið að skreyta og undirbúa jólin í Costco fyrir löngu, ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Ég veit líka að nú eru þúsundir Íslendinga úti í samfélaginu sem kvíða jólunum. Ég veit líka að við borðum hvorki krónur né prósentur og þegar verið er að segja hve hátt við skorum og að við séum ein af farsælustu þjóðum veraldar hvað lýtur að velsæld getum við ekki horft fram hjá því að þótt við séum alltaf hreint með meðaltal sem sýnir það stendur samt sem áður stór hluti í samfélaginu höllum fæti. Í velsældinni á Íslandi er velsældin sérstaklega smíðuð utan um ákveðinn velsældarhóp. Hinir mega halda áfram að lepja dauðann úr skel. En afskaplega væri það ánægjulegt, virðulegi forseti, ef við ættum þessa mælikvarða sem væru sérstaklega til þess sniðnir að gefa öllum Íslendingum kost á því að taka þátt í þeirri velsæld sem við svo auðveldlega getum búið öllum landsmönnum ef við kjósum svo.