jarðamál og eignarhald þeirra.
Herra forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur, fyrir að hefja þessa umræðu um jarðamál og fyrir að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri umræðu. Við erum enn og aftur að ræða mál sem hefur brunnið á mönnum misserum og árum saman. Þetta er orðinn nokkurs konar farsi. Hér í dag hlustum við á hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ráðherra spyrja og ræða sín á milli um stöðu málsins.
Jarðasöfnun og -kaup útlendinga hafa verið í deiglunni lengi og hefur mörgum þótt keyra um þverbak þegar erlendir og fjarlægir aðilar eru í einhverjum tilvikum skráðir eigendur að heilu og hálfu héruðunum ásamt öllum auðlindum sem þeim fylgja. Það er ekki unnt að kenna blessuðum EES-samningnum þarna um vegna þess að í þessum efnum erum við með töluvert rýmri heimildir en nágrannaþjóðir okkar á hinum Norðurlöndunum og það jafnvel þó að sumar þær þjóðir séu aðilar að Evrópusambandinu sem við erum ekki.
Því er eðlilegt að spyrja: Hvað kemur í veg fyrir að slíkt frumvarp sé löngu komið fram? Er ekki eðlilegt að tengja búsetu hér á landi við jarðakaup, sérstaklega þegar um stórar jarðir er að ræða þar sem sérstakar auðlindir er að finna eða jarðir í landbúnaðarnotum? Hvert er vandamálið? Fyrir liggja heilmiklar skýrslur um hvað unnt er að gera. Af hverju er þetta hik? Er þetta kannski ákvörðun sem ekki er vilji til að taka? Hversu lengi eigum við að bíða? Er ekki vilji til að breyta lögunum og koma í veg fyrir stórfelld uppkaup erlendra aðila á jörðum hér á landi? Ef það er ekki vilji til þess eiga menn bara að segja það.