150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

jarðamál og eignarhald þeirra.

[15:26]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir þessa umræðu og forsætisráðherra fyrir að taka þátt í henni. Það sem ég verð eiginlega að benda á og mér finnst að við ættum að taka algjörlega til fyrirmyndar í þessum málum í sambandi við jarðareignir eru Danir. Danmörk er með frábærar reglur um þetta og alveg skýrar reglur um það að ef maður ætlar að kaupa bújörð þar verður maður að nýta hana og búa á henni. Síðan eru þeir líka með frábærar reglur um það ef maður ætlar að kaupa íbúð í einhverjum smábæ í Danmörku að þá verður maður að hafa verið í Danmörku einhvern tíma, maður verður að hafa tengsl og verður að búa þar.

Það sem ég furða mig kannski mest á í þessari umræðu er eignarkomplexarnir. Hverjir eiga Ísland? Getum við keypt Ísland eins og það leggur sig? Þurfum við ekki að fara að spyrja okkur að því af hverju við þurfum að selja landið? Af hverju má ekki bara vera nýtingarréttur á landi? Er það ekki þjóðin sem á Ísland? Af hverju þarf að kaupa allt og negla það niður að einhver eigi landið og hann megi gera liggur við það sem hann vill? Og hvað á hann þá? Rigninguna? Vindinn? Á hann allt sem varðar viðkomandi landsvæði? Við verðum líka að hugsa aðeins út fyrir kassann og spyrja okkur: Hvernig ætlum við að láta landið nýtast, hverjir eiga að nýta það og hvernig?

Ég segi fyrir mitt leyti að ég held að samþjöppun eins og er núna þar sem menn eru að kaupa upp heilu laxveiðiárnar til þess að — í hvaða tilgangi? Við vitum það ekki. En ég spyr: Þegar einstaklingur sem kaupir jörð fellur frá, hvað verður þá um hana? Hann getur verið með góðan tilgang en við vitum ekkert hvaða tilgang sá einstaklingur sem tekur við hefur. Við verðum að passa okkur og sjá til þess að það sé í lögum, að það sé á hreinu að fólk sem eignast slíkar jarðir muni nýta þær til góðs.