jarðamál og eignarhald þeirra.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa þörfu umræðu. Hvert er markmiðið? spurði hv. þm. Álfheiður Eymarsdóttir. Væntanlega er markmiðið að reyna að halda byggð í landinu og að við getum nýtt auðlindir okkar áfram í framtíðinni eins og við höfum gert og gerum núna. En ég ætla að grípa niður í þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í jarðamálum sem þingflokkur Framsóknarflokksins stendur að. Ég ætla að koma hérna að lið nr. 6. Hann fjallar um að komið verði á fót lánasjóði vegna jarðakaupa. Og af hverju er það þarft? Jú, í ljósi þess að nýverið kom fram hjá fjármálaráðuneytinu að það ætti t.d. einnig að endurskoða eigendastefnu ríkisins á jörðum. Því tel ég að slíkur lánasjóður sé æskilegur og vel umræðunnar virði. Við getum horft á það þannig varðandi þann lánasjóð að einungis verði lánað út á land, lánin verði til langs tíma og viðkomandi aðili borgi ekki af höfuðstólnum heldur hvíli lánið eingöngu á jörðinni sem slíkri og menn borgi í sjálfu sér fyrir afnotin af fjármagninu, þ.e. vexti. Ég tel að með (Forseti hringir.) þeirri aðgerð auðveldum við aðgengi hins almenna borgara að landi. (Forseti hringir.) Fyrirgefðu, virðulegur forseti. Málið er það þarft að við þurfum að fá sem flesta að borðinu til þess að halda landinu í byggð.