jarðamál og eignarhald þeirra.
Herra forseti. Ég tel það slæma þróun að fáir aðilar eignist stór landsvæði burt séð frá þjóðerni. Besta fyrirkomulagið er að bændur eigi sínar jarðir og nytji þær. Þeir eru bestu vörslumenn landsins. Við höfum séð þessa neikvæðu þróun jarðasöfnunar erlendis og þurfum að koma í veg fyrir að sú þróun haldi áfram hér eins og verið hefur. Við viljum ekki veikja búsetu á góðum bújörðum í sveitum og að hér verði til stétt nýrra leiguliða. Það þarf að vera hægt að fylgjast með eignarhaldi jarða en það er mjög erfitt í dag. Það mætti skoða skattlagningu til að koma í veg fyrir jarðasöfnun þar sem jarðir eru teknar úr landbúnaðarnotkun. Í dag eru gríðarstórar jarðir með lágt fasteignamat, jarðir sem hafa gengið kaupum og sölum fyrir hundruð milljóna. Það þarf að setja t.d. laxveiðihlunnindi með betri hætti inn í verðmæti jarða og við skulum muna að laxveiðar voru byggðar upp á samfélagslegum grunni. Þegar jarðir eru nýttar til búskapar ættu fasteignagjöldin að endurspegla það að arðurinn verður eftir í samfélaginu sem ekki gildir um eignarhaldsfélög sem safna að sér bújörðum.
Við ræðum mikið um kolefnisbindingu í þessum sal. Bændur gegna lykilhlutverki í þeirri vinnu í sveitum landsins. Það eru bændur sem stunda landgræðslu og hafa gegnt hlutverki landvarða í gegnum árin en ekki breskir eða íslenskir auðmenn. Við skulum líka muna það. Við verðum að stoppa þessa jarðasöfnun af áður en við verðum búin að missa þessa þróun úr böndunum með tilheyrandi byggðaröskun.
Ég treysti því að það frumvarp sem hæstv. forsætisráðherra mun leggja fram, hvort sem það verður í formi bandorms eða með öðrum hætti, verði til að stoppa af þessa neikvæðu þróun strax.