150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

jarðamál og eignarhald þeirra.

[15:36]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Við þurfum að sjálfsögðu almenn lög um jarðir, nýtingu þeirra, umgengni um þær og almenning. Fyrst og fremst þurfum við þó að takmarka hömlulausa jarðasölu einstaklinga og félaga, algjörlega burt séð frá þjóðerni. Í sjálfu sér finnst mér ekki skipta öllu máli í öllum tilfellum hvort einstaklingar kaupi jarðir án þess að hafa fasta búsetu. Það er alveg hægt að fara illa með jörð þó að fólk búi á henni. Við hljótum að leita leiða til að sporna gegn mjög stórum uppkaupum aðila með jafnvel óskýr áform sem ásælast heilu sveitirnar. Ég held að það skipti ekki öllu máli hvort þetta séu endilega íslenskir eða erlendir aðilar. Mér hugnast einfaldlega ekki að jarðir þjappist takmarkalaust og sífellt á færri hendur, ekki frekar en mér hugnast að auðlindir okkar eða auðmagnið safnist á færri hendur. Við þurfum að taka á öllu þessu.

Það má svo sem alveg spyrja hvort við þurfum að þrengja eitthvert skilyrði þegar um er að ræða mjög stórfelld jarðakaup einstaklinga sem hafa engin sýnileg tengsl við svæðið eða annað, ég veit það ekki. Aðalatriðið er að almenn lög séu í gildi. Nýting leiðir ekki alltaf til þess að farið sé vel með jörðina eins og dæmin sýna.

Hæstv. forseti gaf fyrr í dag leyfi til að sletta latínu í staðinn fyrir ensku og ég held að ég að ætti enda á því að segja: Terra sphaerica est. (Gripið fram í: Vel gert.)