150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

jarðamál og eignarhald þeirra.

[15:38]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég hygg að landakaup útlendinga eða söfnun þeirra á landi sé ekkert meira vandamál í sjálfu sér en uppkaup íslenskra fjárfesta, auðmanna eða hvað menn vilja kalla þá. Ég hygg að hagsmunir t.d. íbúa í Vopnafirði séu ekkert verr staddir þó að enskur maður eigi þar nokkrar jarðir en ef það væri Íslendingur. Íslendingur myndi ekki tryggja þá frekar. Vandinn virðist fremur liggja í því að koma í veg fyrir það að saman safnist á fáar hendur jarðir sem eru auðugar af náttúruauðlindum, laxveiðiréttindum, vatnsréttindum o.s.frv. Það er eitthvað sem við eigum að huga að, það er hægt að gera. Til dæmis er leið sem hv. þm. Haraldur Benediktsson og ég höfum lagt til sem er að takmarka atkvæðisrétt í veiðifélögum og ég veit að hæstv. landbúnaðarráðherra hefur tekið það mál upp á sína arma. Við höfum líka lagt fram frumvarp sem auðveldar kynslóðaskipti í atvinnurekstri, þar á meðal í búrekstri, og það er eitthvað sem á að athuga. Ég hygg að það eigi að athuga hvort við eigum ekki að setja í lög að það myndist engar skattalegar kvaðir við kynslóðaskipti á bújörðum, enda sé búrekstri haldið áfram í ákveðinn tíma, 10–15 ár eða svo. Þá má líka velta því fyrir sér hvort við séum ekki með fyrirmynd í lögum um fjöleignarhús sem í eru skyldur íbúa gagnvart nágrönnum sínum og hvort eigi að yfirfara þau t.d. á jarðaeigendur, skyldur er viðkoma t.d. að halda girðingar, (Forseti hringir.) taka þátt í fjallskilum o.s.frv. Þetta finnst mér vera aðgerðir sem við eigum að vera að ræða og ég held að gætu þjónað meira að segja hagsmunum bænda og eigenda íslenskra jarða best.