jarðamál og eignarhald þeirra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svörin og öðrum sem tóku þátt í umræðunni. Hún hefur verið mjög góð og töluvert dýpri og yfirgripsmeiri en þegar við ræddum þessi mál fyrir tæpu ári. Ég er líka mjög ánægð að heyra hversu sókndjörf forsætisráðherra er. Það er mikilvægt að vinna málið heildstætt. Þetta er víðtækt verkefni og margir þurfa að koma að því. Við sjáum hvað umræðan hefur breyst á einu ári og hún mun skila okkur betri niðurstöðu fyrir vikið. Það er ótrúlegur samhljómur í umræðunni og ég held að hún hljóti að vera leiðbeinandi um framhaldið. Það er alveg ljóst að stjórnvöld geta beitt ýmsum tækjum til að hafa áhrif á ráðstöfun lands. Mikilvægt er að við tökum grundvallarákvörðun um hvernig við ætlum að gera það og með hvaða markmiðum þar sem almannahagsmunir eru alltaf leiðarljósið.
Ég fagna hverju skrefi sem við stígum og sennilega þurfa þau að vera mörg, hugsanlega smá skref, einhver stór og önnur smærri. Samhliða þurfum við að átta okkur á því hvaða forsendur við getum lagt til grundvallar. Það þarf að vera skýrt hvernig við viljum nýta auðlindir á landi til lengri tíma og hvernig við sköpum því lagaramma. Vandinn er samþjöppunin, eins og fram hefur komið, en einnig felst vandi í því ef eignarhaldið er alltaf fjarri jörðinni. Í einhverjum tilfellum væri hægt að setja búsetuskyldu á jörðina, annars staðar væri það búsetuskylda innan sveitarfélags, hugsanlega á einhverjum skika. Síðan finnst mér grundvallaratriði að starfsemi sé á landinu svipuð og er í skilyrðum landanna hér í kring.
Góð og ígrunduð stjórn lands og jarðeigna er grundvallarþáttur í efnahagslegri þróun samfélaga og sjálfbærri nýtingu náttúrunnar og nýsköpun. Það er verkefni stjórnvalda að tryggja það.