150. löggjafarþing — 13. fundur,  8. okt. 2019.

skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.

190. mál
[15:59]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um skráningarskyldu félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði sérstök lög um félög til almannaheilla sem safna eða útdeila fjármunum í almannaþágu og eru með starfsemi yfir landamæri. Markmiðið með lagasetningunni er að þau félög sem falla undir gildissvið frumvarpsins séu skráningarskyld og að haldin sé sérstök skrá um þau innan fyrirtækjaskrár. Einnig eru með lagasetningunni sett ákveðin lágmarksskilyrði um uppbyggingu og sýnileika þessara félaga. Með frumvarpinu er brugðist við athugasemdum alþjóðlegs vinnuhóps um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, svokallaðan FATF-sérfræðingahóp, á ensku Financial Action Task Force, sem m.a. hefur gert athugasemdir við að ekki sé kveðið á um skráningarskyldu framangreindra félaga hér á landi. Einnig er með frumvarpinu brugðist við niðurstöðum áhættumats ríkislögreglustjóra um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka svo og aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í kjölfar þess. Frumvarpið er enn fremur hluti af þeim umfangsmiklu aðgerðum sem stjórnvöld hafa þegar ráðist í vegna athugasemda FATF.

Með frumvarpinu er lagt til að félög til almannaheilla sem safna eða útdeila fjármunum í almannaþágu og eru með starfsemi yfir landamæri verði skráð í fyrirtækjaskrá sem ríkisskattstjóri starfrækir og að haldin verði aðgreinanleg skrá um framangreind félög. Um skyldu til skráningar verður að ræða hjá þeim félögum sem falla undir gildissvið frumvarpsins. Gildissviðið er takmarkað við þau félög sem falla undir skilgreiningu FATF á almannaheillafélögum en sú skilgreining tekur til lögaðila eða sambærilegra aðila eða samtaka sem hafa þann megintilgang að safna eða útdeila fjármunum í almannaþágu, svo sem til líknarmála, trúmála, menningarmála, menntamála, félagsmála eða annarra góðgerðarmála. Við afmörkun gildissviðs frumvarpsins er einnig horft til þess að aðgerðir aðildarríkja FATF eigi að vera áhættumiðaðar og því er kveðið á um skráningarskyldu þeirra félaga sem falla undir framangreinda skilgreiningu FATF og talin eru í mestri hættu á að vera misnotuð en það eru félög sem safna eða útdeila fjármunum í almannaþágu og hafa starfsemi yfir landamæri. Í þessu samhengi er rétt að taka fram að þegar eru í gildi lög um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög og lög um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Framangreind félög eru nú þegar skráningarskyld á grundvelli tilvitnaðra laga og upplýsingar um þau varðveittar í aðgreindri skrá hjá fyrirtækjaskrá. Frumvarp þetta tekur því ekki til slíkra félaga.

Í samræmi við niðurstöður áhættumats ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka er lögð áhersla á það að undir gildissviðið falli eingöngu þau félög sem eru með starfsemi yfir landamæri, þ.e. félög sem stofnuð eru og starfrækt á Íslandi og eru jafnframt með starfsemi erlendis. Hvað starfsemi yfir landamæri varðar er ekki eingöngu um að ræða fjármagnsflutninga milli landa heldur einnig aðra starfsemi þessara félaga erlendis þar sem unnt væri m.a. að misnota aðstöðu þeirra.

Félög til almannaheilla gegna mikilvægu hlutverki í samfélagi okkar og er ákaflega mikilvægt að hlúa vel að þeim. Félög til almannaheilla sinna verkefnum á margvíslegum sviðum og eru allt frá því að vera lítil grasrótarsamtök og upp í að vera stór félög sem starfrækja deildir á landsvísu og jafnvel út fyrir landsteinana. Það er mikilvægt að viðurkenna hið mikilvæga samfélagslega hlutverk þeirra félaga til almannaheilla sem veita þjónustu um allan heim. Með frumvarpi þessu er ekki ætlunin að gera þessum félögum erfiðara fyrir í því mikilvæga starfi sem þau sinna heldur er markmiðið með frumvarpinu að tryggja yfirsýn og eftirlit með framangreindum félögum til varnar því að þau séu misnotuð til peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka í samræmi við alþjóðlegar kröfur.

Rétt er að taka sérstaklega fram að aðgerðum þeim sem hér er gripið til er ætlað að draga úr hættu á því að þau félög sem falla undir gildissvið frumvarpsins séu misnotuð til fjármögnunar hryðjuverka. Stjórnvöld hafa einnig gefið út fræðsluefni fyrir almannaheillafélög um góða starfshætti sem ætlað er að efla skilning almannaheillafélaga á því hvernig þau geta verið misnotuð við fjármögnun hryðjuverka og hvernig megi draga úr hættu á misnotkun. Þótt í fræðsluefninu sé sérstaklega lögð áhersla á leiðbeiningar til að draga úr mögulegri misnotkun á almannaheillafélögum til fjármögnunar hryðjuverka nýtast þær einnig til að draga úr áhættu á annars konar fjárhagslegri misnotkun.

Í frumvarpinu er lagt til að félögin sem undir gildissvið þess falla verði skráð í almannaheillafélagaskrá sem ríkisskattstjóri starfrækir og að skráin verði hluti af fyrirtækjaskrá. Í frumvarpinu er að finna ákvæði um stofnun félags, meginefni samþykkta sem og ákvæði um félagsaðild. Einnig er í frumvarpinu að finna ákvæði um hvaða málefni skuli taka á dagskrá aðalfundar og um aðalfundarboð. Í frumvarpinu er enn fremur að finna ákvæði um stjórn félags, hlutverk hennar, ráðningu framkvæmdastjóra og hlutverk hans sem og hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra. Í frumvarpinu er einnig að finna ákvæði um slit félags og afskráningu. Þá er að finna ákvæði um skráningu í almannaheillafélagaskrá, hvaða atriði skuli skrá og hvaða fylgiskjöl þurfi að fylgja með tilkynningu um skráningu.

Hæstv. forseti. Hér er á ferðinni þýðingarmikið frumvarp sem miðar að því að tryggja að þau félög sem falla undir gildissvið frumvarpsins séu skráningarskyld og að um þau gildi ákveðin lágmarksskilyrði um uppbyggingu og sýnileika. Sem áður segir er með frumvarpinu verið að bregðast við athugasemdum alþjóðlegs vinnuhóps um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem hefur gert athugasemdir við að ekki sé kveðið á um skráningarskyldu framangreindra félaga hér á landi. Einnig er með frumvarpinu brugðist við niðurstöðum áhættumats ríkislögreglustjóra um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, svo og aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í kjölfar þess.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar og meðferðar.