150. löggjafarþing — 13. fundur,  8. okt. 2019.

skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.

190. mál
[16:05]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna. Við höfum vissulega haft mjög lítinn tíma til að kynna okkur þetta mál þannig að mínar spurningar eru kannski frekar yfirborðskenndar akkúrat núna. Ég er þó með nokkrar, sérstaklega vegna þess hversu hratt þetta mál ber að. Að mínu mati, eins langt og ég hef komist í lestri frumvarpsins, hefur það íþyngjandi áhrif á starfsemi félagasamtaka. Þeim er núna skylt að skrá sig. Það er verið að setja á fangelsisrefsingar við ákveðnum athöfnum sem þessi félagasamtök standa að, eins og t.d. athöfnum á aðalfundi og öðru slíku og þeim er gert að halda félagaskrá.

Ég velti fyrir mér í fyrsta lagi: Hvers konar samráð var haft við gerð þessa frumvarps við félagasamtök um íþyngjandi ákvæði í þeirra garð? Um hvaða félög er eiginlega að ræða? Ég hef heyrt nefnda tölu um félög sem þetta geti náð yfir en ég hef ekki fengið að heyra hvaða félög það eru sem þessi lög munu ná yfir. Ég velti fyrir mér hvort ráðherra viti hvaða félög þetta séu. Ég hef ekki enn þá fengið það skýrt fram um hvaða félög frumvarpið fjalli. Mér þykir svolítið mikilvægt að við á Alþingi Íslendinga vitum hvaða félög muni verða fyrir áhrifum af þessum lögum áður en við setjum íþyngjandi skilyrði um starfsemi þeirra. Það er félagafrelsi í þessu landi. Það er mjög mikilvægt að virða það. Ef við ætlum að setja skorður, leggja á auknar kvaðir, láta jafnvel ákveðnar athafnir innan félagasamtaka varða fangelsisvist — var haft samráð við félagasamtökin? Um hvaða félagasamtök er að ræða? Var skoðað hvort þetta stæðist alþjóðlegar skuldbindingar okkar um að virða félagafrelsi á Íslandi?