skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
Herra forseti. Örfá orð um þetta mál og málið sem hæstv. dómsmálaráðherra mælti fyrir áðan. Við í Viðreisn munum að sjálfsögðu ekki standa í vegi fyrir því að þessi mál hljóti afgreiðslu en engu að síður er ýmislegt sem þarf að upplýsa, m.a. málsmeðferðin. Eftir að hafa hlustað á báða ráðherrana og svör þeirra er ég enn bara í þoku um af hverju þetta beri svona brátt að. Það er eins og íslensk stjórnsýsla sé ekki tilbúin til að axla ábyrgð í alþjóðlegu samstarfi, vera vakandi gagnvart þeim skyldum sem við þurfum að sinna hverju sinni í stórum sem smáum málum.
Það er að verða svolítið einkennandi fyrir þessa ríkisstjórn að vera alltaf bara í hlutlausum gír, er ekki tilbúin eða sýnir ekki frumkvæði. Við þurfum að axla ábyrgð í alþjóðasamstarfi og uppfylla þær skyldur sem við höfum, einmitt til þess að veita aðilum sem málið getur snert, í þessu tilfelli frjálsum félagasamtökum, tækifæri til að koma með andmæli, ábendingar, vera í samstarfi við þá aðila sem málin snerta. Það er að ýmsu að hyggja. Þessi málsmeðferð er algjörlega á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna. Þýðir það að við í Viðreisn munum standa í vegi fyrir að þetta verði afgreitt? Nei, eins og ég sagði áðan munum við ekki gera það. Þarna liggja ríkir hagsmunir undir sem ég vil ekki að klaufagangur ríkisstjórnarinnar spilli þannig að þeir verði undir í alþjóðlegu samhengi.
Þetta er umhugsunarefni. Enn og aftur koma mál frá ríkisstjórninni sem eru ekki nægilega vel unnin. Við í stjórnarandstöðunni munum ekki láta okkar eftir liggja en enn og aftur er bara stólað á að stjórnarandstaðan hlaupi undir bagga og bjargi ríkisstjórninni fyrir horn. Gott og vel, það eru ríkir hagsmunir hér. Við munum fara vandlega yfir þetta. Ég treysti á að það verði gert hjá formönnum nefndanna sem hér standa í dyragætt í röðum og bíða eftir að fá málið. Ég stóla á að þeir fari vel yfir þær ábendingar sem hafa verið settar fram, m.a. af þingmanni Pírata. En þetta er mikið umhugsunarefni. Kjörtímabilið er ekki hálfnað, herra forseti, og ég vona að við þurfum ekki að upplifa aftur og aftur það sem eftir lifir kjörtímabils svona vinnubrögð af hálfu ríkisstjórnar. Við munum sjá til þess að þingið geti unnið þetta eins vel og kostur er á þeim skamma tíma sem við höfum til stefnu.