skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Þrátt fyrir að ég viti að hv. þingmanni finnist mjög gaman að nýta hvert tækifæri til þess að tala um klaufagang þessarar ríkisstjórnar sem upp komi í máli eftir mál vildi ég koma hingað upp til að mótmæla því. Því er ekki til að dreifa. Við fengum skýrslu frá FATF árið 2018 þar sem var tiltekinn 51 ágalli á umgjörð og framkvæmd í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Það er auðvitað alvarlegt. Það er áfellisdómur yfir ákveðinni framkvæmd árin þar á undan. En þar sem spurt er sérstaklega um þetta mál, aðdraganda þess og af hverju það komi svona seint inn þá var ekki kallað eftir breytingum á þessari löggjöf í samhengi við það sem við erum að koma með núna. Það var ekki þannig. Sérfræðingahópur FATF sem ber ábyrgð á eftirfylgni með Íslandi skilaði skýrslu í lok september og þar kemur þetta mál upp. Það eru bara nokkrir dagar frá septemberlokum. Það skýrir af hverju þetta er að koma inn núna. En við höfum auðvitað verið að vinna mjög stíft og vel frá árinu 2018 í ágöllunum sem bent var á og lítum svo á að við séum að klára það að fullu. Það skiptir máli að klára þetta mál í því samhengi. En þessar tillögur komu ekki fyrr en fyrir um tveimur vikum síðan.