skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
Herra forseti. Ég verð að segja að þetta andsvar ráðherra sannfærði mig enn frekar um að ríkisstjórnin var ekki tilbúin. 2018 kemur skýrslan. Það er verið að segja okkur núna, okkur formönnum flokkanna og forystufólki í flokkunum, að það verði að hraða þessu í gegn því afleiðingar þess að bregðast ekki við geti orðið svo alvarlegar. Það fer ekki saman hljóð og mynd. Er ráðherra og ríkisstjórnin að segja mér það að þau hafi ekki gert sér grein fyrir því að þau þyrftu að vera tilbúin með viðbrögð gagnvart skýrslunni og hverjar afleiðingarnar gætu orðið? Afleiðingarnar miðað við það sem ráðherrar hafa sagt geta orðið mjög alvarlegar. Af hverju voru þá ráðuneytin ekki tilbúin? Af hverju voru ráðherrar í ríkisstjórn Íslands ekki tilbúnir? Það er það sem mér finnst umhugsunarefni.
Ég skil vel hæstv. ráðherra sem er vandvirk í öllum sínum vinnubrögðum. Ég get vel trúað á að ráðherra sé jafnvel pínulítið pirraður yfir því hvernig málin standa, að þurfa að reyna að verja þetta. Það er eitthvað að í kerfinu ef það kvikna engin ljós við það að ef ekki verði samþykktar ákveðnar breytingar geti það haft alvarlegar afleiðingar. Þá er eitthvað að hjá okkur. Þá þarf að taka til og ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn að skoða betur hvernig hlutirnir eru gerðir í ráðuneytinu.