skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Bara til að ítreka það þá er frumvarpið sem ég er hér að mæla fyrir ekki hluti af upptalningu í skýrslunni sem kom út 2018. Við gátum ekki verið tilbúin fyrir eitthvað sem við vissum ekki um þá heldur kom upp í lok september, fyrir örfáum dögum síðan. Þess vegna erum við að bregðast við núna og ég þakka að sjálfsögðu hv. þingmanni fyrir að ætla að vinna málið með okkur.
Já, það getur stundum verið pirrandi þegar mál eru komin á þennan stað. En það má líka spyrja almennt bara um vinnulagið, ekki bara okkar megin heldur líka að það hafi komið skýrsla 2018 þar sem þetta birtist ekki sem ágalli sem er síðan fyrir nokkrum dögum talið mikilvægt. Að sjálfsögðu bregðumst við við í ljósi þeirra hagsmuna sem undir liggja.