skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
Herra forseti. Það er umhugsunarefni og þarf að komast skýrt til skila af hálfu íslenskra stjórnvalda gagnvart þeim sem gera skýrsluna að ef verið er að krefja okkur um hluti sem stóðu ekki í skýrslunni þá er náttúrlega bara ósanngjarnt að við fáum ekki meiri tíma en þetta. Ég treysti því að íslensk stjórnvöld haldi uppi málsvörn fyrir Ísland í þessu. Eftir stendur að það er vandræðagangur í vinnubrögðum ríkisstjórnar. Það er sjálfsagt að verða við því þegar ósk kemur fram að vera liðleg. Það er ekki nema sjálfsagt. Þetta er enn eitt dæmi um það sem ég er að undirstrika, stjórnarandstaðan er ekki — eins og oft hefur verið — bara til að vera á móti. Þetta er til þess að vinna vel í þágu allra og ef það þýðir að við þurfum að hjálpa ríkisstjórninni með enn eitt málið þá bara gerum við það.