150. löggjafarþing — 13. fundur,  8. okt. 2019.

skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.

190. mál
[16:20]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég gæti náttúrlega efnislega farið aftur með stóran hluta af ræðu hv. þingkonu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Samfylkingin mun í sjálfu sér að sjálfsögðu ekki spyrna svo fast við fæti að ekki verði hægt að klára þessi mál vegna þess að okkur formönnum hefur verið tjáð að það sé ansi mikið í húfi. Það breytir því ekki að þetta er óþolandi staða. Kannski er ríkisstjórnin farin að gefa sér að stjórnarandstaðan muni ævinlega koma og greiða fyrir málum, hjálpa til og liðka fyrir þegar ríkisstjórnarflokkarnir innbyrðis eru komnir í öngstræti. Nægir að nefna þungunarrofsmálið, orkupakkamálið. En þannig virkar þetta ekki. Við getum ekki mætt trekk í trekk og farið að afgreiða mál — því að þau verða nokkur sem þarf að afgreiða — án þess að vita meira en svo um hvað þau fjalla og af hverju þessi flýtir er á málinu. 2018 kemur þessi skýrsla frá FATF með 58 ábendingum og það er búið að vinna svolítið á þeim bunka. Það breytir því ekki að nokkur mál og nokkrar aðgerðir standa út af. Mér hefði þótt heiðarlegra ef ríkisstjórnin, sem er með það skrifað í stjórnarsáttmála sinn að það eigi að breyta vinnubrögðum á þinginu og eiga meira samráð við minni hlutann, hefði þá bara strax haft samband við okkur og spurt: Hvernig getum við á næstu dögum eða vikum tekið til við að vinda ofan af þessu í sameiningu? Í staðinn fyrir að skella þessu í andlitið á okkur einum til tveimur dögum áður en þarf að afgreiða þetta.

Þótt ég gjarnan vildi get ég ekki verið sammála hv. þingkonu Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um að hér sé á ferðinni klaufaskapur. Ég vil miklu frekar kalla þetta trassaskap. Ríkisstjórnin fær trekk í trekk í fangið mál sem voru löngu fyrirséð. Það má nefna Landsréttardóminn sem kom öllum afskaplega á óvart þó að það væru nú 50% líkur frá útgangspunkti hvernig félli og kannski enn meiri líkur á að hann félli á þann veg sem varð ef hlustað hefði verið á fræðimenn. Ég get nefnt WOW. Þegar það flugfélag fór á hausinn kom það öllum í stjórnarliðinu óskaplega á óvart. Við getum nefnt Guðmundar- og Geirfinnsmálin og viðbrögðin við því og hvernig er verið að reyna að vinda ofan af því núna eftir á með frumvarpi sem hefði í rauninni, ef þörf er á því, átt að koma fyrir einu ári en virðist vera einhvers konar leiðangur til að koma hæstv. forsætisráðherra úr ógöngum sem hún rataði í með því að lesa ekki greinargerð ríkislögmanns. Mér finnst vera makalaust hvað ríkisstjórnin er óundirbúin trekk í trekk.

En svo það sé ítrekað: Ef afleiðingarnar eru, verða eða geta orðið jafn alvarlegar og okkur var tjáð ef við klárum þetta ekki, væri það mjög óábyrgt að fara að standa of fast í vegi fyrir því. En við skulum þá reyna að draga einhvern lærdóm af þessu. Þetta á ekki að koma fyrir aftur.