150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa tilkynningar frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, frá Ólafi Ísleifssyni, og á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, sömuleiðis frá Ólafi Ísleifssyni.