störf þingsins.
Virðulegur forseti. Á árunum sem liðin eru frá hruni höfum við gert æðimargt til að reyna að girða fyrir að mörg þau mistök sem gerð voru þá endurtaki sig. Öll skilyrði lánveitinga til einstaklinga hafa verið hert til mikilla muna og þykir mörgum nóg um, m.a. til að koma í veg fyrir lántökur einstaklinga í erlendri mynt. Nú er það hins vegar svo að þær girðingar sem við höfum reist virðast um leið koma í veg fyrir að fólk, Íslendingar búsettir hér á landi sem starfa erlendis eða þiggja laun í erlendri mynt, geti komið sér þaki yfir höfuðið með nokkuð góðu móti.
Að máli við mig kom maður sem var orðinn örvæntingarfullur, búinn að ganga á milli lífeyrissjóða og lánastofnana vikum saman að sækjast eftir einföldu húsnæðisláni hér á landi. Hann starfar erlendis en er með lögheimili hér og er búsettur hér lengstan part ársins. Ekki var nokkur leið að fá húsnæðislán í íslenskum krónum því að hann hafði jú vissulega tekjur í erlendri mynt og lög eru orðin svo flókin að engin lánastofnun treysti sér til að annast það utanumhald sem krafist er í lögum hvað varðar lán í annarri mynt en tekjur eru. Hann hafði talið að þetta yrði ekki mikið vandamál, það væri sjálfsagt og auðsótt mál, enda erum við alltaf að tala um að við séum með alþjóðlegt hagkerfi, og hann fengi einfaldlega lán í þeirri mynt sem hann hefur tekjur í, en þá var svarið stutt og laggott: Nei, hér eru ekki lengur veitt lán í erlendri mynt til einstaklinga.
Hér er einfaldlega búið að reisa slíkar girðingar að hópur fólks, og ég ætla að um sé að ræða þó nokkurn hóp og vaxandi í alþjóðlegu hagkerfi, sem hefur ekki tekjur í íslenskum krónum virðist ekki með nokkru móti geta fengið húsnæðislán til þess að koma sér þaki yfir höfuðið hér á landi. Það getur ekki verið markmið lagasetningar hvað varðar einstaklinga. Úr þessu hlýtur að þurfa að bæta.