störf þingsins.
Virðulegi forseti. Stefnumótandi byggðaáætlun var samþykkt á 148. þingi þar sem segir m.a. að Ísland verði í fararbroddi með nútímainnviði, framsækna þjónustu og nýjustu tækni sem tengi byggðir saman og Ísland við umheiminn í jafnvægi við umhverfið. Í byggðaáætlun er m.a. fjallað um fjarheilbrigðiskerfi og -heilbrigðisþjónustu til að leitast við að jafna aðgengi landsmanna að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu. Þetta á kannski sérstaklega við um aðgengi að sérfræðiþekkingu og gagnkvæmri faglegri ráðgjöf heilbrigðisstarfsmanna. Þörf lækna og hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni fyrir aðstoð og ráðleggingar frá sérfræðingum Landspítala er mikil og getur skipt sköpum við meðferð sjúklinga. Bætt samskipti eru ávinningur, flækjustigið er minnkað og það getur sparað tíma og stytt bataferli. Mest af slíkum samskiptum fer fram með símtölum og tölvupóstum eins og staðan er í dag.
Á vef heilbrigðisráðuneytis segir að Landspítali hafi fengið styrk til að þróa skilvirkari sérfræðiþjónustu við landsbyggðina. Verkefnið snýst um að útbúa farveg fyrir ýmsar samskiptaleiðir. Í tengslum við þetta verkefni hefur Landspítali komið á samstarfi við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða um bætt aðgengi að sérfræðilæknum. Verkefnið er í samræmi við markmið heilbrigðisstefnu um að jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu um landið og byggðaáætlun eins og fyrr er vísað til. Þarna er verið að spara tíma, löng ferðalög og dýr, svo að ekki sé talað um vinnutap. Einnig er mjög mikilvægt að verið er að styrkja gagnkvæma faglega ráðgjöf milli heilbrigðisstarfsmanna. Það er því mjög ánægjulegt að sjá að nýsamþykkt byggðaáætlun og heilbrigðisstefna eru farnar að vinna í rauntíma.