150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

störf þingsins.

[15:13]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er eindregin skoðun mín að með því að tryggja jafnan kosningarrétt, tryggja að fullu jafnt vægi atkvæða, séum við að undirstrika grundvallarmannréttindi í íslensku samfélagi, algjörlega óháð efnahag, kyni og búsetu. Slíkt getur ekki og má ekki vera skiptimynt á hinu pólitíska sviði. Sama atkvæðavægi á að gilda á milli landsmanna, hvar sem þeir búa á landinu. Að landið verði eitt kjördæmi getur verið liður einmitt í þessu skynsamlega og réttláta skrefi og gott að við getum fengið tækifæri til að ræða það. Þannig verða þingmenn þingmenn allra landsmanna. Að mínu mati eykur slíkt samkennd og skilning. Það styrkir lýðræðið, yfirsýnina og ýtir undir það að við þingmenn sinnum því að efla Ísland þannig að það verði enn samkeppnishæfara í harðri baráttu við alþjóðasamfélagið.

Í þeirri samkeppni er lykilatriði fyrir okkur sem hér störfum að Ísland allt sé undir. Þannig höfum við í Viðreisn unnið og ég tel æskilegt að við höfum ávallt í huga að við verðum að hafa heildina í huga til að vera samkeppnishæf í mikilli alþjóðasamkeppni. Í skýrslu sem unnin var fyrir stjórnlaganefnd segir um jafnt vægi atkvæða, með leyfi forseta:

„Jafnræði þegnanna til að hafa pólitísk áhrif er meðal grundvallaratriða lýðræðisins og borgaralegra réttinda.“

Þessu er mjög erfitt að andmæla. Mismunandi vægi atkvæða eftir kjördæmum má líkja við að vernd eignarréttinda væri ólík á milli kjördæma. Ég leyfi mér að fullyrða að við það myndi enginn sætta sig. Þess vegna ætti enginn heldur að sætta sig við búsetubundna mismunun á atkvæðavægi.

Við erum núna með heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á borðum formanna stjórnmálaflokkanna undir forystu forsætisráðherra. Við höfum komið okkur saman um ákveðið verklag og þar á meðal ákveðna þætti sem við höfum forgangsraðað. Ég tel alveg skýrt, m.a. í ljósi niðurstöðu og atkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs en ekki síður rökræðukönnunar sem var kynnt um daginn, að það er eindreginn vilji landsmanna (Forseti hringir.) að við forgangsröðum upp á nýtt og skoðum m.a. jafnt vægi atkvæða á þessu kjörtímabili.