150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Samkvæmt ársskýrslu Fiskistofu var útflutningur á ferskum fiski í gámum tæp 24.000 tonn árið 2013 en árið 2018 voru flutt út 42.000 tonn óunnin. Okkur ætti öllum að vera ljóst að hægt er að vinna allan þennan fisk hér á landi. Ég bendi á að mörg störf í fiskvinnslu glatast, svo ekki sé minnst á önnur þau afleiddu störf sem tapast. Virðisaukinn sem liggur í fullvinnslu á fiski er það mikill að við getum ekki látið það viðgangast að þessi þróun haldi áfram. Ein birtingarmyndin er að fiskverð á uppboðsmörkuðum hér heima hefur hækkað mikið það sem af er hausti vegna skorts á fiski og vegna þess að margar fiskvinnslur eiga í basli með að afla sér hráefnis vegna þessa.

Árið 2009, rétt eftir hrun, jókst gámaútflutningur gríðarlega og þá brugðust stjórnvöld við með því að leggja álag á þennan útflutning sem dróst saman í framhaldinu. Síðan var það tekið af.

Í óundirbúnum fyrirspurnatíma 16. september sl. innti ég sjávarútvegsráðherra eftir aðgerðum gegn þessari þróun og spurði hvort hæstv. ráðherra hygðist bregðast við. Fátt varð um svör og sagðist hann ekki ætla að bregðast við. Í Kastljósi á dögunum komu sömu svör frá ráðherranum. Á fundi atvinnuveganefndar í gær var þetta mál á dagskrá og þar kom fram að mikið af þessum fiski sem fluttur er út óunninn fer í fiskvinnslu þar af því að ódýrara vinnuafl er í boði þar en hér á landi.

Hæstv. forseti. Þetta er þróun sem við verðum að stöðva. Virðisaukinn í fiskútflutningi liggur í fullvinnslu hér heima og þar verðum við að standa vörð.