störf þingsins.
Forseti. Fyrr í dag hófst innrás Tyrkja í Sýrland. Yfirlýst ástæða innrásarinnar samkvæmt tísti frá forseta þessarar bandalagsþjóðar okkar í NATO er að koma í veg fyrir aðgang hryðjuverkamanna að suðurhluta landamæra Tyrklands. Í framhaldinu heldur Tyrklandsforseti fram þeirri firru að með innrásinni muni Tyrkir varðveita landfræðilegt fullveldi Sýrlands og frelsa íbúa landsins frá hryðjuverkamönnum.
Forseti. Innrás Tyrkja er glæpur gegn friði. Hún gengur gegn grundvallarlögum þjóðaréttar og ég kalla á það að ríkisstjórnin, sér í lagi hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir og hæstv. utanríkisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, lýsi því yfir hið fyrsta. Það er kýrskýrt í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og í dómum Alþjóðadómstólsins í Haag að það er grundvallarglæpur að fullvalda ríki ráðist inn í annað fullvalda ríki án aðkomu og samþykkis öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, að því einu undanskildu að um sjálfsvörn sé að ræða. Sú vörn á augljóslega ekki við í þessu tilfelli.
Ég kalla eftir því að hæstv. ráðherra kalli þessa innrás réttu nafni, þ.e. glæp gegn friði, ólögmæta innrás. Ég kalla eftir þessu þrátt fyrir hræsnina sem augljóslega felst í því að lýsa því yfir í þessu tilfelli en ekki t.d. þegar Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar hófu loftárásir á Sýrland um árið vegna þess að einhvern tímann þurfum við að byrja að kalla hlutina réttum nöfnum. Ríki mega ekki ráðast inn í önnur ríki. NATO má heldur ekki ráðast inn í önnur ríki. Samt sjáum við það aftur og aftur, herra forseti, að slíkar innrásir eiga sér stað og að leiðtogar NATO-ríkjanna eða aðrir stríðsherrar taka til við að bera fyrir sig alls konar varnir á innrásarstríðum sínum sem ekki standast neina skoðun.
Ég kalla eftir því að ríkisstjórn Íslands fordæmi þessa innrás og geri það á réttum forsendum, að hún sé glæpur gegn friði sem megi ekki líðast þó að það feli í sér að við gætum þurft að horfa í spegil í kjölfarið.