vindorka og vindorkuver.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að ræða með okkur þetta mikilvæga málefni og eins að vísa til skýrslu ráðherra um nýjar aðferðir við orkuöflun sem ég lagði fram skýrslubeiðni um fyrir margt löngu og kom út í nóvember 2018. Ég vona að sem flestir þingmenn hafi getað gluggað í hana. Þar er fjallað nokkuð ítarlega um nýja kostinn sem verður æ fyrirferðarmeiri í umræðu og leyfisumsóknir til rannsókna vítt og breitt um landið, þ.e. vindorkuna. Vindorkan er afar sveigjanlegur orkukostur. Hægt er að vera með smávindmyllur upp á 1–10 megavött eða eitthvað slíkt, nokkrar saman eða jafnvel eina eða tvær, og stóra vindorkugarða sem hver framleiðir afl upp á 100–200 megavött eða meira. Hagkvæmnin er orðin allgóð og batnar tiltölulega hratt. Auk þess snýr tilraunarekstur ofan Búrfells að ýmsum rannsóknum á þessu sviði og hann sýnir að nýtni vindmylla er góð og reksturinn hagkvæmur. Þar eru tvær myllur sem stendur. Vindorkan er tæknilega vel þróuð en það er allmargt sem þarf að skoða í kjölinn og ákvarða eða endurbæta ef þörf er á.
Ef við horfum hingað heim vil ég fyrst nefna lagaumbúnaðinn utan um allt ferlið frá því að hugmynd að vindorkuveri er sett fram af virkjunaraðila, allt það ferli, þá að kröfum til tillögu sem á að skoða. Það þarf að setja slíkum tillögum ákveðnar kröfur að mínu mati. Þar næst þarf að skoða hvernig skipulagsmálum í héraði er fyrir komið og hver tekur ákvarðanir um hvað. Því næst eru leyfisveitingar, bæði til rannsókna og byggingar virkjana. Svo kemur hlutdeild fyrirhugaðrar virkjunar í heildarskipulagi orkunýtingar á landinu, þá að matsskyldu umhverfisáhrifa virkjana yfir tilteknu lágmarki og loks flokkun virkjunarkosta hvað vind varðar samkvæmt lögum um verndar- og nýtingaráætlun frá 2011, þ.e. rammaáætlun eins og við köllum. Eru þessar stóru virkjanir þar eða ekki?
Ef þetta er íhugað eru þetta ansi mörg og mikilvæg verkefni sem er búið að skoða að einhverju leyti. Til hefur verið samráðshópur, búið er að taka saman þessa skýrslu en það er margt eftir sem þarf að glöggva sig á og setja í heildrænt samhengi. Ég tel afar brýnt að beislun vindorku, sem getur komið til greina og hefur áhrif á aðrar virkjanafyrirætlanir, lúti lögum og skipulagi sem eru á forræði ríkisins í samvinnu við sveitarfélögin og í samræmi við bæði orkustefnu þegar hún kemur fram og orkuþörf í landinu hverju sinni, enda má segja að þessar virkjanir, þegar um er að ræða vindorkugarða, mæli sig á við stórar eða meðalstórar vatns- og jarðhitavirkjanir eða jafnvel mjög stórar virkjanir ef út í það er farið.
Herra forseti. Ég tel ekki ásættanlegt að stór eða meðalstór vindorkuver rísi án samræmdrar skipulagningar, í sem allra stystu máli án samræmds heildarskipulags. Ég ætla heldur ekki að eyða tíma í að gera grein fyrir margs konar álitamálum í þessum efnum sem ég hef skoðanir á en spyr þess í stað hæstv. ráðherra orkumála um í grunninn þrjú atriði. Í fyrsta lagi hvernig hún sjái samhengið á milli rammaáætlunar ásamt heildarskipulagi orkunýtingar í landinu og vindorkuvera. Í öðru lagi hvernig samvinnu skuli háttað milli Alþingis, ríkisvalds og sveitarfélaga við að tryggja sjálfbærni þessarar orkuvinnslu þannig að þolmörk séu virt, þolmörk náttúrunnar, samfélaga og í efnahagslegu tilliti. Í þriðja lagi hvort og hvernig hún sjái upplýsingar um lífsferilsgreiningar eða heildarvistspor vindorkuvera í samanburði við aðra kosti, hvort þessi samanburður skuli tekinn með í myndina þegar verið er að taka ákvarðanir um svona orkuver.
Ég gæti nefnt fleira. Ég sá mjög dapurlegar fréttir um fugladauða í Noregi, yfir 100 hafernir höfðu dáið á tilteknu tímabili eða farist í vindmyllum, það er því að mörgu að hyggja. Ég ætla ekki að spyrja um þetta atriði, þá er komið of langt út fyrir efnið í bili, en býst við góðum og gagnlegum umræðum.