150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

vindorka og vindorkuver.

[15:45]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að setja á dagskrá Alþingis sérstaka umræðu um vindorku og vindorkuver. Þau mál hafa verið í deiglunni að undanförnu og það er gagnlegt að taka þau til umfjöllunar á Alþingi. Ég mun leitast við að svara þeim spurningum sem hv. þingmaður hefur lagt fram í þremur liðum. Í fyrsta lagi varðandi spurningu um samspil rammaáætlunar og vindorku er sú lykilspurning til meðhöndlunar í sérstökum starfshópi á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Rök hafa verið færð fyrir því að hin hefðbundna málsmeðferð laga um rammaáætlun eigi ekki nægilega vel við um vindorkukosti og ástæður þess eru nokkrar eins og þær að sem auðlind er vindurinn nokkurn veginn óþrjótandi, sérstaklega hér á landi, ólíkt öðrum orkukostum og takmarkast helst af landrými. Vindurinn er ekki staðbundinn orkukostur heldur er hægt að hagnýta hann á flestum stöðum landsins. Vindorkuver krefjast mun minni undirbúningstíma og rannsókna en hefðbundnir orkukostir og fljótlegt er að reisa og taka niður slík mannvirki. Vindorkuver hafa í för með sér minna og óafturkræft rask að mestu en hefðbundnari orkukostir og með hliðsjón af þeirri sérstöðu vindorkunnar er nú til skoðunar hvort og hvernig hún geti sætt annarri málsmeðferð innan eða utan rammaáætlunar en hinir hefðbundnu orkunýtingarkostir.

Ég held að í þessum efnum getum við tekið mið af því hvernig nágrannaþjóðir okkar hafa nálgast sama viðfangsefni. Í Noregi var fyrr á þessu ári kynnt kortlagning landsvæða til nýtingar vindorku þar sem skilgreind eru þau svæði sem þykja henta vel fyrir nýtingu vindorku og á hvaða svæðum forðast ætti slíka starfsemi. Slík aðferðafræði byggist á því að svæðum er forgangsraðað með heildstæðu mati sem tekur til umhverfis-, samfélags- og kerfislegra þátta með það að markmiði að vindorka sé nýtt á þeim svæðum þar sem sátt hefur náðst um staðsetninguna og þar sem aðstæður henta.

Með töluverðri einföldun má alveg segja að við höfum farið svipaða leið hvað varðar sjókvíaeldi svo við tökum annað dæmi. Slík kortlagning felur í raun í sér opinbera stefnumótun um nýtingu vindorku og er að mínu mati mikilvægt að sveitarfélög hafi aðkomu að þeirri vinnu. Hluti vinnunnar felst í að ákvarða hvaða þættir eigi að vera ráðandi við kortlagningu landsvæða. Til álita koma þættir eins og veður og vindafar, áhrif á fugla og umhverfi, tengingar við flutningskerfi raforku, víðerni, nálægð við ferðamannastaði eða íbúabyggð, menningarminjar, samfélagsáhrif og ýmislegt fleira. Í Noregi var unnið vindorkukort út frá 21 þætti, svo dæmi sé tekið.

Þegar stefnumótun í formi vindorkukosts liggur fyrir er að mínu mati nærtækt að hún hljóti formlega umfjöllun og samþykki á Alþingi, t.d. í formi þingsályktunar, og slíkt vindorkukort gæti einnig verið hluti af landsskipulagsstefnu. Það er sömuleiðis í sérstakri skoðun. Í framhaldi af því gætu opnast möguleikar á að einfalda leyfisveitingaferli þeirra kosta sem falla innan skilgreindra nýtingarsvæða. Þetta er það sem starfshópur ráðuneytanna þriggja vinnur nú að því að formgera og mun skila tillögum fyrir áramót. Ég bind vonir við að þá verðum við komin með skýrari línur og að skynsamleg þróun í nýtingu vindorku á Íslandi strandi ekki lengur á óvissu um hvernig fara eigi með þennan orkugjafa með tilliti til rammaáætlunar.

Í öðru lagi varðandi spurninguna um þolmörk náttúru og samfélaga er einmitt kjarninn í þeim hugmyndum um kortlagningu svæða sem ég var að reifa að hún verði unnin á grundvelli heildstæðs mats sem tekur jafnt til umhverfislegra, samfélagslegra og kerfislegra þátta og að sjálfbærni og þolmörk náttúru og samfélaga hljóti að vera hluti af slíku mati. Hérna getum við enn lært af því hvernig Noregur og Skotland hafa unnið sína stefnumótun og áætlanir um vindorku á grundvelli kortlagningar landsvæða og til þess þarf sem áður segir gott samráð og samvinnu við sveitarfélög og fleiri lykilaðila.

Í þriðja lagi var spurt um heildarvistspor stórra raforkuvindmylla á grunni lífsferilsgreininga. Ég tel rétt að sá þáttur verði tekinn með í reikninginn og jafnframt að komið verði inn á þann þátt í þeirri langtímaorkustefnu sem nú er unnið að. Í tilfelli vindorku eru vistferilsgreiningar háðar stærð vindmylla, afkastagetu, líftíma og fjölda, en margar myllur vinna meira rafmagn en þeim fylgja einnig fleiri strengir, slóðar o.s.frv. Heildarumhverfisáhrif raforkuvinnslu með vindorku eru því háð hverju tilviki fyrir sig. Hafa ber í huga að það sama á við um aðra orkukosti. Mannvirki sem fylgja jarðvarma og vatnsafli hafa einnig sitt vistspor og hafa fjölmargar LCA-lífsferilsgreiningar verði gerðar hér á landi fyrir vatnsafl og jarðvarma nú þegar.