150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

vindorka og vindorkuver.

[15:50]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni, fyrir að hefja þessa umræðu um vindorku og fyrir að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri umræðu. Vindorka hefur verið tiltölulega lítið nýtt hér á landi og er helst að menn þekki til Búrfellslundar þar sem tvær vindmyllur hafa verið starfræktar frá því í lok árs 2012. Þær eru 55 metra háar og hver spaði er 22 metrar á lengd og eru þeir því í 77 metra hæð í efstu stöðu eða töluvert hærri en Hallgrímskirkjuturn. Þessar tvær vindmyllur hafa getu til að framleiða rafmagn fyrir allt að 1.200 heimili. Í Skotlandi er nú þegar komið vindorkuver fyrir 7.000 megavött sem er meira en tvöfalt afl allra orkuvera á Íslandi og eru áætlanir um að auka það hratt upp í yfir 13.000 megavött.

Herra forseti. Beislun vindorku hefur ótal marga kosti. Áhrif vindorkuvera á landslag og ásýnd lands eru mikil og sjónræn áhrif ná oft hundruð kílómetra frá staðsetningu þeirra og gætu haft áhrif á upplifun ferðamanna. Á móti kemur að vindmyllur eru afturkræfar og er unnt að færa landið til síns fyrra horfs og taka það til annarra nota.

Áhrif vindorkuvera á fuglalíf hafa verið töluvert í umræðunni, sérstaklega í Noregi þar sem þær hafa höggvið stór skörð í stofn hafarna þar í landi. Þetta er eitthvað sem við verðum að íhuga vandlega og vanda staðarval og fara varlega yfir höfuð í þessum efnum. Sérfræðingar telja betra að byggja upp vindmyllugarða á fáum og vel völdum stöðum, og tek ég undir það, fremur en að dreifa þeim um allar koppagrundir. Á þetta ekki síst við með tilliti til fuglalífs.

Herra forseti. Brýnt er að stjórnvöld marki stefnu í þessum efnum sem allra fyrst og setji vandaðan lagaramma um vindorkuver.