vindorka og vindorkuver.
Herra forseti. Hvers vegna nýtum við Íslendingar ekki vindorku meira? Áhrif vindmylla eru afturkræf ólíkt áhrifum vatnsaflsvirkjana og jarðhitavirkjana og enginn útblástur óæskilegra efna er frá vindmyllum. Vindorkunýting bindur ekki hendur komandi kynslóða um nýtingu á landsvæðum. Helsta ástæða þess að vindorka hefur lítið verið nýtt hérlendis er að kostnaður við að framleiða rafmagn með henni hefur verið meiri en fyrir vatnsafls- og jarðhitavirkjanir og hingað til hefur ekki skort endurnýjanlega virkjunarkosti á Íslandi.
Með þróun aðferða og bættri tækni verður vindorka sífellt raunhæfari valkostur. Það er samt að ýmsu að gæta, eins og hér hefur komið fram. Ekki er nóg að vindar blási af og til. Vindmyllur virka t.d. hvorki í logni né í of miklu roki. Hámarksafköst fást við stöðugan og nokkuð mikinn vindhraða. Tilraun Landsvirkjunar með uppsetningu vindmylla norðan við Búrfell sýnir þetta glöggt. Raforkuvinnslan verður mest yfir vetrartímann þegar vindasamast er. Íslenska orkukerfið byggist að stóru leyti á miðluðu vatnsafli sem vinnur vel með ótryggri vindorkunni. Það er vindasamara á Íslandi en í flestum löndum sem við berum okkur saman við. Því framleiðir vindmylla á Íslandi meiri orku árlega en mylla af sömu stærð á landi annars staðar.
Þróunin er hröð í uppbyggingu vindmyllugarða úti um allan heim. Skotland er land sem við getum borið okkur saman við í þessum efnum. Danir voru að taka í notkun vindmyllugarð sem gæti framleitt rafmagn fyrir öll íslensk heimili og meira en það. Það eru ýmis álitamál sem taka verður tillit til við uppbyggingu vindmyllugarða, svo sem sjónmengun, hljóðmengun og áhrif á dýralíf, en kostirnir eru margvíslegir. Rafmagn framleitt með vindmyllum gæti orðið góð viðbót við þá rafmagnsframleiðslu sem er fyrir hendi hér á landi.