150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

vindorka og vindorkuver.

[15:54]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni, fyrir að vekja máls á þessari umræðu og fyrir að fá að taka þátt í henni. Áhugi einkafjárfesta á að fjárfesta í vindorkuverum og smærri vatnsaflsvirkjunum hér á landi fer vaxandi. Það kemur varla á óvart enda felast mikil tækifæri í þróun á endurnýjanlegum orkugjöfum á Íslandi. Landfræðileg lega Íslands er einstök með tilliti til nýtingar á vindorku og ekki skortir hér landsvæði sem eru opin fyrir vindi enda eru sum einstaklega hagstæð í því samhengi.

Orkustofnun hefur bent á að mikil umframeftirspurn sé eftir raforku á Íslandi og að brýnt sé að huga sérstaklega að lagarammanum um nýtingu vindorku og á það sérstaklega við um skilgreiningu á vindorkugörðum og vindbúum. Reyndar hefur Landsvirkjun líka bent á að vindorkuverkefni eru líkleg til að taka fjórum til sjö árum lengri tíma á Íslandi samanborið við nágrannaþjóðir. Ljóst er að fara þarf betur ofan í undirbúning vindorkuverkefna.

Á 148. þingi barst svar við skriflegri fyrirspurn minni til hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um vindorku og hvort unnið hefði verið að því að setja sérstök lög eða reglugerð um vindorkugarða eða vindmyllur til raforkuframleiðslu. Í svari ráðherra er vísað í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að setja þurfi lög um vindorkuver og vinna með sveitarfélögum leiðbeiningar um skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar. Nágrannaþjóðir okkar hafa mikla reynslu af uppbyggingu á vindorku, t.d. Skotar, en reynsla þeirra sýnir að uppbygging vindorku hefur til að mynda ekki áhrif á ferðamennsku þar í landi. Orkustofnun bendir á að skilyrði til nýtingar vindorku sé mikilvægasti þátturinn þegar ákveða á staðsetningu vindorkuvers. Þá skiptir nálægð við flutningskerfi og flutningsgeta þess á raforku einnig miklu máli varðandi staðarval.

Ljóst er að í mörg horn er að líta í þessu sambandi og því mikilvægt að stjórnvöld móti viðeigandi lagaumgjörð og reglur þar sem hagsmunir samfélagsins og sjálfbærni eru hafðir að leiðarljósi.