150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

vindorka og vindorkuver.

[15:59]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Frú forseti. Ég tek undir með öðrum þingmönnum hér og fagna þessari umræðu. Það er ánægjulegt líka að heyra þann samhljóm sem er í þingsal. Hagnýting vindorku hlýtur eðli máls samkvæmt að vera mjög ákjósanleg fyrir okkur Íslendinga. Þetta er sennilega ein sú orka sem við höfum helst til of mikið af sem fer þá vel á í þessu samhengi. Það er mjög mikilvægt að um þetta sé mótuð lagaumgjörð þannig að það sé skýrt hvernig við hyggjumst þá byggja upp. Við þekkjum mætavel að hagnýting vindorku með vatnsafli getur farið ákaflega vel saman, en það þarf auðvitað að huga að sjálfbærni hér eins og annars staðar og huga að umhverfisáhrifum og að við förum ekki fram í neinum asa eða gerum afdrifarík mistök meðan við erum að feta okkur inn á þá slóð.

Mér finnst ánægjulegt að heyra að það er samhljómur um að við eigum klárlega að hagnýta þennan kost. Þetta er umhverfisvænn orkukostur sem gnótt er af hér á landi. Það er ekkert launungarmál að skoðanir innan þessarar ríkisstjórnar til hagnýtingar orku yfir höfuð eru æðimisjafnar. Ég vona að í mótun nauðsynlegs lagaumhverfis gerum við ekki sömu mistök og við höfum lent í með rammaáætlun sem er einfaldlega hægt að segja að sé orðin ónothæft tæki eins og hún er í dag. Við erum strand og búin að vera strand í mörg ár í rammaáætlun út af eilífum deilum með það tæki sem það átti að vera til fyrirsjáanleika, bæði varðandi nýtingarsjónarmið en ekki síður verndarsjónarmið. Þann hnút verðum við að leysa. Vonandi verður eitthvað að frétta af áformum ríkisstjórnar hvað varðar það hvernig við komumst áfram með vinnuna í kringum rammaáætlun en ég vona svo sannarlega að við mótun lagaumhverfis um hagnýtingu vindorkunnar komum við okkur ekki í sömu vandræði og við höfum gert með rammaáætlun.