vindorka og vindorkuver.
Forseti. Mér finnst þetta góð og mikilvæg umræða og ég fagna því alltaf þegar við ræðum orkumál í þessum sal. Að mínu viti er orkan lykillinn að sjálfbærni þegar kemur að kolefnisjöfnun og svo ótal mörgu öðru. Þar kemur vindorkan inn. Hún hefur verið til umræðu í starfshópi um mótun orkustefnu og mér hefur stundum þótt þegar við ræðum ákveðna hluti er varða vindorku — og hefur svo sem heyrst í fjölmiðlum vitnað í ýmsa sérfræðinga hvað það varðar — að ákefðin í að nýta hana sé svo mikil að það er eins og sumir óttist að það muni lægja fyrir fullt og allt á Íslandi innan tíðar. Þess vegna er ég sérstaklega ánægður með það hvernig ríkisstjórnin hefur haldið á þeim málum, skipað starfshóp þriggja ráðuneyta sem skoðar hvernig rétt sé að nýta þennan orkukost, tengingu við landsskipulag o.s.frv. Þau sem hafa skoðað útfærslur á hugmyndum um vindmyllulönd á hafinu hafa einnig séð að með því að vanda sig aðeins, staldra við og hlusta á athugasemdir hefur sú hugmynd tekið algjörum stakkaskiptum. Það þarf að vanda til slíkra verka. Yfir og allt um kring í þessu er kolefnishlutleysi og ekki bara það heldur neikvæður kolefnisbúskapur sem við þurfum að fara í þar sem við bindum meira en við losum.
Þess vegna þarf í mínum huga að horfa á sjálfbærni hvers einasta virkjunarkosts. Þar eru vindmyllur ofarlega á blaði en einnig alls orkukerfis okkar. Það að virkja vindinn í framleiðslu sem kemur sér illa fyrir kolefnisbúskap þjóðarinnar er ekki gott skref en að nýta vindorku sem aðra orku í að bæta kolefnisbúskapinn er alltaf gott skref.