150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

vindorka og vindorkuver.

[16:10]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Sf):

Forseti. Við ræðum vindorku sérstaklega. Mig langar að tala samt svolítið um endurnýjanlega orku. Vindorkan er náttúrlega hluti af því og það sem er gleðilegt núna er að loksins hefur verð á vindorku og öðrum endurnýjanlegum orkugjöfum lækkað mjög mikið. Tækninni í þessum geira fleygir mjög hratt fram sem er náttúrlega vegna hnattrænnar hlýnunar og minni eftirspurnar eftir mengandi orkugjöfum. Nú er svo komið að ódýrasta raforka í heimi er úr vindorkugörðum á landi í Kína og Bandaríkjunum. Það eru gleðitíðindi.

Hér á landi höfum við búið þannig að við höfum verið með fjölmarga möguleika þegar kemur að endurnýjanlegum orkugjöfum og við ættum algjörlega að fylgjast með vindorku og þróuninni þar. Ef við ætlum að virkja meira held ég að það væri góður kostur þótt margt þurfi að taka til umfjöllunar þar líka. Kannski er það skásti kosturinn vegna þess að vindmyllur eru afturkræfar en við höfum mörg líka áhyggjur af raski á fuglalífi.

Ég held að við þurfum líka að spyrja okkur hvort við á Íslandi sem höfum yfirleitt allt til alls þurfum meiri orku. Þurfum við fleiri virkjanir hér á landi, hvernig svo sem þær eru? Er kannski bara nóg komið?