150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

vindorka og vindorkuver.

[16:19]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Frú forseti. Þegar kemur að lokum þessarar umræðu ber að þakka öllum sem hafa tekið þátt og hæstv. ráðherra sérstaklega. Það er ánægjulegt að sjá jákvæðni í garð vindorku sem fyrsta skref. Það er heilmargt eftir, eins og ég nefndi. Það sem ég vil ekki sjá er einhvers konar kapphlaup án ramma, kapphlaup fyrirtækja og sveitarfélaga við að afgreiða fullt af vindorkugörðum inn í skipulag. Það þarf að hægja á og koma böndum yfir þennan góða orkukost.

Svo langar mig að benda á eitt, það er mjög mikilvægt að hlutfall vindorku í heildarorkuframleiðslunni sé hverju sinni skilgreint. Af hverju er það? Það er vegna þess að ekki er hægt að stjórna flutningi raforku ef höfuðáhersla er lögð á vindorku annars vegar og jarðhitaorku hins vegar af því að það er ekki hægt að regúlera, sem menn kalla, flutninginn nema hafa mjög stöðuga en stillanlega orkuframleiðslu og það eru auðvitað vatnsvirkjanir. Þetta verður alltaf að vera bland í poka og það verður að vera mjög vel skilgreint hvert hlutfallið er af heildinni hverju sinni.

Varðandi skilgreind svæði langar mig að benda á að grunnúttekt Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings er til þar sem er búið að flokka landið í heppileg vindorkusvæði. Svo þarf auðvitað að taka tillit til ótal annarra þátta þegar verður farið að ákvarða hvað megi nota og hvað ekki. Sjónmengun og fugladauði eru hlutir sem þarf að taka tillit til og varðandi afturkræfnina langar mig að minna á að þetta er inngrip í náttúruna. Það eru lagðir burðarvegir, það eru búin til hífingarplön og síðast en ekki síst er losun frá öllu ferlinu, frá því að vindmyllur eru búnar til og þangað til búið er að setja þær upp. Það er ekki stórt vistspor meðan þær eru í rekstri (Forseti hringir.) en svo aftur þegar þeim er fargað.