150. löggjafarþing — 14. fundur, 9. okt. 2019.
skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
190. mál
Frú forseti. Hér í ræðu um fyrra málið var talað um að það væri fólk sem væri ofar okkur í launaröðinni, eða hvernig það var nú orðað, sem tæki ákvarðanir sem okkur væri stundum gert að fylgja. Varðandi spurningar hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur get ég ekki svarað fyrir það, aumur þingmaður, hvers vegna sú ákvörðun var tekin að hafa ekki fulltrúa stjórnarandstöðunnar með í þessari vinnu. Ég hef ekki hugmynd um hvernig var staðið að mannvali og verkefnastýringu í málinu.