skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
Frú forseti. Nei, hv. þingmaður sem hér stendur hefur ekki heyrt af þeirri kröfu en það kann vel að vera að hún hafi heyrst og þingmaðurinn hafi verið utan við sig. Það gerist. Ég myndi ekki taka svo djúpt í árinni að segja að málið sé vel undirbúið. Eins og ég sagði áðan er málsmeðferðin ekki nógu góð, ég margendurtók það áðan, og ég gagnrýni það jafn mikið og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir að ekki hafi gefist ráðrúm til að gera þeim félögum viðvart sem þessar breytingar á lögum beinast að. Það segir í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta:
„Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar er talið að á þriðja hundrað félaga heyri undir gildissvið laganna og hefur ekki unnist ráðrúm til að gera þeim viðvart. Í þessu ljósi leggur meiri hlutinn áherslu á að sanngirni og meðalhófs verði gætt við þá vinnu sem fram undan er við að hafa samband við félögin og veita þeim upplýsingar, leiðbeiningar og eðlilega fresti til að uppfylla skilyrði laganna.“
Eins og ég sagði áðan fór ríkisskattstjóri yfir það á fundi nefndarinnar með okkur, hvort það var í morgun eða í gær, hvernig félagaskráningu er háttað og svaraði því til að það væri ekki mikið mál að aðgreina þessa skrá frá öðrum og útfæra það og aðstoða félögin við að uppfylla nýju skilyrðin. Málið er því eins vel undirbúið og hægt var í ljósi stöðunnar, ef ég má orða það þannig, og stjórnarmeirihlutinn hefur brugðist við viðkvæmum hlutum í nefndaráliti með áherslum sínum sem ég held að eigi að koma til móts við félögin.