skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir fyrirlesturinn. Ég hlýt að spyrja hann á móti þegar hann talar um að þetta sé ekkert inngrip og ekkert stórmál og að málið hafi ekkert með félagafrelsi að gera hvort hann sé ekki sammála því sem stendur í hans eigin nefndaráliti, með leyfi forseta, að til umræðu hafi komið í nefndinni að beiting heimildar 2. mgr. 14. gr. frumvarpsins fæli í sér verulegt og íþyngjandi inngrip í rekstur félags. Er þetta ekki rétt? Er ekki verið að setja lög sem fela í sér íþyngjandi inngrip í rekstur félags? Það er nú allur galdurinn. Ég er að segja það, ef hv. þingmaður hefur áhuga á svarinu, að þessi lög feli í sér íþyngjandi inngrip í rekstur félagasamtaka. Það er félagafrelsið sem ég er að vísa í. Þegar löggjafinn ætlar sér að skerða eða vera með íþyngjandi inngrip í rekstur félaga eða setja lög þar um hlýtur að þurfa að fara fram sanngjarnt mat á því hvort lagasetningin sé nauðsynleg, hvort hún nái tilsettu markmiði og hvort hún sé sett í lögmætum tilgangi.
Ég spyr hv. þingmann á móti: Finnst honum eðlilegt og boðlegt að meta það hvort slíkt inngrip sé í samræmi við meðalhóf á sólarhring? Er það hægt? Það er nú allur galdurinn í því sem ég er að segja, hv. þingmaður.